Drekaútboð frestast - orkumálastjóri sleginn 15. júní 2011 19:15
Fresta verður Drekaútboðinu um þrjá til fjóra mánuði sökum þess að Alþingi afgreiddi ekki nauðsynlegar lagabreytingar. Orkumálastjóri segist sleginn þar sem nú hafi verið lag að bjóða út olíuleit. Útboðið átti að hefjast þann 1. ágúst og því kom það starfsmönnum Orkustofnunar í opna skjöldu að Alþingi skyldi ekki klára frumvörpin þrjú fyrir þinglok en um þau virtist ekki neinn ágreiningur. Spurður um þessi vinnubrögð Alþingis segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri að þeir hjá Orkustofnun séu slegnir. Það sé hins vegar Alþingis að setja lögin og eftir þeim verði þeir að starfa. Venjan er sú að viðkomandi ráðherrar, í þessu tilviki fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra, gæti að því í samstarfi við forseta Alþingis og sína þingflokksformenn að nauðsynleg stjórnarfrumvörp fái afgreiðslu. Enginn þessara aðila virðist hafa þrýst á afgreiðslu Drekafrumvarpanna á lokasprettinum. Afleiðingin, að mati orkumálastjóra, er sú að fresta þarf útboðinu um nokkra mánuði. "Mér sýnis að þetta geti orðið 3-4 mánuðir," svarar Guðni, spurður um seinkunina. Orkustofnun stóð í síðustu viku fyrir kynningarfundi í Stafangri um útboðið þar sem mættu fulltrúar olíufélaga eins og ExxonMobil, ConocoPhillips, Statoil og Total. Orkumálastjóri segir að menn hafi fundið það í Stafangri að góðar aðstæður séu núna til að bjóða út olíuleit. Veður geti hins vegar skipast fljótt í lofti, eins og gerðist í efnahagshruninu fyrir tveimur árum. "Það er aldrei gott að bíða ef við höldum að það sé lag," segir Guðni. -Gætum við kannski misst af stóra tækifærinu vegna þessarar seinkunar? "Við gætum misst af stóru tækifæri. Við gætum fengið annað stórt tækifæri. Þetta er eins og venjulega, þegar maður stekkur eða bíður, það getur farið á tvo vegu. En ég held að það hefði verið lag núna."
Mest lesið Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri fréttir „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu