Logi Geirs hefur störf í sjónvarpi 5. janúar 2011 10:00 Logi Geirsson er á leið í sjónvarpið en hann verður einn fjögurra sérfræðinga hjá Stöð 2 Sport á meðan HM í handbolta fer fram um miðjan janúar. Fréttablaðið/Vilhelm „
Logi [Geirsson] er meiddur og getur ekki verið með landsliðinu en mun í stað þess vera tengiliður milli landsliðsins og þjóðarinnar enda þekkir hann hvern krók og kima hjá því, öll leikkerfi og getur jafnvel lesið í andlitsdrætti leikmanna,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson, umsjónarmaður HM-stofu Stöðvar 2 Sport í handbolta. Hann hefur fengið til liðs við sig fjóra þjóðþekkta handknattleikssérfræðinga á meðan HM fer fram í Svíþjóð en þetta eru auk Loga þau Guðjón Guðmundsson, Geir Sveinsson og Hafrún Kristjánsdóttir. Mótið hefst 13. janúar næstkomandi. Logi sjálfur er auðvitað hundsvekktur að geta ekki verið með landsliðinu í Svíþjóð enda segir hann liðið nú vera einstakt, það geti unnið til verðlauna og slíku vilji enginn leikmaður missa af. „Ég var með svona atvinnumannaskóla fyrir yngstu kynslóðina í Kaplakrika milli jóla og nýárs og endaði skólann á því að sýna þeim myndbandið sem við horfðum á fyrir úrslitaleikinn gegn Frökkum á Ólympíuleikunum. Og það féllu alveg tár þegar maður rifjaði þetta upp,“ segir Logi, sem hefur verið að glíma við erfið meiðsl í öxl. Logi hlakkar hins vegar til að takast á við sjónvarpsverkefnið og segist ætla að útskýra fyrir fólki alls kyns smáatriði sem varða leik landsliðsins og fólk skilur kannski ekki. „Til að mynda af hverju við spilum stundum 5-1 vörn, hvað leikkerfin ganga út á og hvernig þau eiga að ganga upp. Ég vona bara að ég komi þessu skemmtilega frá mér,“ segir Logi, sem hefur miklar væntingar til landsliðsins og telur að „strákarnir okkar“ geti barist um gullið ef allt gengur upp. „Það er einfaldlega kominn tími á sigur.“- fgg
Mest lesið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Sjá meira