Vill skylda sýslumenn til að útvega túlka 16. nóvember 2011 03:30 Amal Tamimi segir að tryggja verði að fólk sem ekki tali íslensku skilji það sem fram fari hjá sýslumönnum. Fréttablaðið/Anton
Skylda ætti sýslumannsembætti landsins til að útvega þeim innflytjendum sem þurfa túlkaþjónustu til að tryggja réttindi innflytjenda sem þangað leita, sagði Amal Tamimi, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um innflytjendamál á Alþingi í gær. Augljós hætta er á því eins og staðan er í dag að fólk af erlendum uppruna skilji ekki það sem fram fer hjá sýslumönnum, sagði Amal. Hún sagði sögu konu af erlendum uppruna sem hefði að beiðni eiginmanns síns skrifað undir pappíra sem hún hélt að væru vegna bílakaupa. Hún fór með eiginmanninum til sýslumanns til að afhenda pappírana, án þess að átta sig á því að hún væri hjá sýslumannsembætti. Þegar konan, sem beitt var ofbeldi af manni sínum, spurði félagsráðgjafa hvernig hún gæti skilið við manninn kom í ljós að hún hafði óafvitandi undirritað eigin skilnaðarpappíra. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði sýslumenn ekki hafa lagaskyldu til að bjóða upp á túlkaþjónustu. Hann hefði hins vegar spurt sýslumenn hvernig slíkri þjónustu væri háttað og fengið þau svör að þar væri „reynt að koma til móts við“ fólk sem ekki skildi íslensku, ensku eða norrænt tungumál. Ögmundur segist ekki þekkja dæmi þess að gagnaðili túlki hjá sýslumanni í deilumáli. Til greina kemur að breyta lögum svo að sýslumenn þurfi að útvega túlka, sagði Ögmundur. Ef vilji Alþingis stæði til þess að gera slíkar breytingar yrðu þingmenn að vera sjálfum sér samkvæmir og láta fjármagn fyrir túlkaþjónustu fylgja lagabreytingunum.- bj
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fleiri fréttir Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent