Þurfum að gera betur varðandi flóttafólk 4. nóvember 2011 06:15 Íris Björg Kristjánsdóttir
Flóttafólk á blaðamannafundi Hjónin Ramin og Jana Sana komu hingað til lands frá Úsbekistan og Afganistan árið 2003. Þau voru ekki skilgreind sem pólitískir flóttamenn en fengu dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum. fréttablaðið/pjetur Flóttamannanefnd velferðarráðuneytisins vonast til þess að geta tekið á móti svokölluðu kvótaflóttafólki hingað til lands í byrjun næsta árs. Ekki var tekið á móti neinum árið 2009 eða í ár, en sex kólumbískir flóttamenn fengu hér aðstöðu í fyrra. Hugtakið kvótaflóttamaður vísar til þess ákveðna fjölda sem boðið er til landa samkvæmt mati Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í haust tók við nýr formaður ráðsins, Íris Björg Kristjánsdóttir, og segir hún það hafa verið hennar fyrsta verk að athuga hvort fjárframlög frá ráðuneytunum þremur, velferðar-, innanríkis- og utanríkisráðuneyti, yrði til þess að mögulegt væri að taka á móti fólki á ný. „Við erum mjög langt frá því að gera nógu vel í málefnum flóttamanna,“ segir hún. „En það litla sem við höfum gert höfum við þó gert vel.“ Íris nefnir þar hlut Rauða krossins og því stuðningsfjölskyldnakerfi sem þar hefur verið komið á fyrir flóttamenn. „En við verðum að gera betur. Það verður að vera sameiginlegur áhugi allra aðila. Ég vil sjá meiri áhuga Íslendinga á málefnum flóttamanna því hingað til hefur okkur þótt það vanta,“ segir hún. „Og ef þessi umræða fer í gang fyrir alvöru, þá mun hún skila sér inn í ákvarðanatöku hjá stjórnvöldum.“ Ekki hefur verið neinn ákveðinn gangur á því hvort eða hversu mörgum flóttamönnum Ísland hefur tekið á móti á ársgrundvelli. Íris segir það vera í skoðun hvort hægt sé að búa til fjögurra eða fimm ára áætlun, líkt og tíðkast á Norðurlöndunum. „Ríkisstjórnin setti sér það markmið að efla þennan málaflokk. Það hefur verið alltaf ákveðinn fjöldi á ári í Skandinavíu og það er eitthvað sem við erum að skoða hér,“ segir hún, og bætir við að það sé erfitt að horfa á ákveðna kostnaðaráætlun í þessu samhengi. „Málið fer á endanum að snúast um peninga, þar sem hver einasta króna skiptir máli og getur breytt mannslífum.“ Málin eru í vinnslu í utanríkisráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er svör að vænta þaðan á næstu vikum. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira