Höfuðpaur í fíkniefnamáli með níu dóma 2. nóvember 2011 09:00 Maðurinn var dæmdur fyrir smygl á sterum í föstu og fljótandi formi.
Höfuðpaurinn meinti í umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem kom upp í síðasta mánuði, á að baki níu refsidóma. Síðast var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir fíkniefnasmygl til landsins og fleiri sakir. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er rökstuddur grunur um að smygltilraunin á amfetamíni, kókaíni, e-töflum og sterum í kílóavís í síðasta mánuði, hafi verið að hans undirlagi. Lögreglan og tollgæslan fundu efnin falin í gámi sem kom með hollensku flutningaskipi til Straumsvíkur. Maðurinn var nú í júní dæmdur fyrir að fjármagna og smygla rúmum 300 grömmum af kókaíni frá Bandaríkjunum árið 2009. Hann var tekinn með efnið, sem hann hafði drýgt og var þá orðið nær 500 grömm, auk rúmlega 300 gramma af amfetamíni. Þá var hann dæmdur fyrir að fela nær 150 grömm af kókaíni og mikið magn steralyfja, í föstu og fljótandi formi, í ferðatöskum sem hann sendi með fraktflugi frá Amsterdam til Íslands árið 2008. Enn fremur var maðurinn dæmdur fyrir að hafa árið 2009 smyglað til landsins fjórtán stykkjum af vefaukandi steralyfjum frá Hollandi. Að auki ræktaði hann í íbúð á Seltjarnarnesi 39 kannabisplöntur. Hann reyndist einnig vera með kannabislauf í fórum sínum. Auk þessa var maðurinn dæmdur fyrir að vera með kannabisefni í vörslu sinni og fyrir umferðarlagabrot, þar sem hann ók sviptur ökuréttindum. Hann var sviptur ökurétti ævilangt. Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir manninum sem verður í gæsluvarðhaldi til 11. nóvember.- jss
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira