KÍ sakað um að misfara með vísindasjóð 22. október 2011 07:00 Sjóðurinn er hýstur hjá Kennarasambandinu í gamla Kennaraskólanum. Það gæti breyst ef samskipti sjóðsstjórnarinnar og sambandsins batna ekki.
Starfsmenn Kennarasambands Íslands (KÍ) hafa ítrekað brotið bókhaldslög við umsýslu Vísindasjóðs Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Þetta fullyrðir stjórn sjóðsins, sem hefur nú svipt Kennarasambandið forræði á sjóðnum og tekið hann í sína vörslu eftir níu mánaða deilur. Stjórnin sendi sjóðfélögum – kennurum og stjórnendum við framhaldsskóla – bréf um málið í gær þar sem segir að alvarlegur trúnaðarbrestur hafi orðið á milli hennar og KÍ. Þar segir að upphaf málsins megi rekja til þess þegar stjórnin óskaði í janúar upplýsinga um svokallað aðstöðugjald sem KÍ greiddi sér af bankareikningi sjóðsins. Þegar í ljós hafi komið að enginn samningur um aðstöðugjaldið lægi fyrir hafi frekari spurningar vaknað og því hafi verið ákveðið að kafa frekar í bókhaldið. Stjórnin segir í bréfi sínu að „óeðlileg tregða“ hafi verið við að láta bókhaldið af hendi þrátt fyrir óskir endurskoðanda og það hafi ekki verið fyrr en hæstaréttarlögmaður var fenginn til að undirbúa innsetningarbeiðni til héraðsdóms í maí sem hluti gagnanna hafi loksins fengist afhentur. Í ljós hafi komið að bókhald sjóðsins hafi ekki verið aðgreint frá bókhaldi KÍ. „Þau gögn sem sjóðstjórn hefur nú þegar undir höndum sýna að bókhaldslög hafi verið brotin og er þar um að ræða brot á nokkrum greinum bókhaldslaga og sum ítrekuð,“ segir í bréfinu. Meðal þess sem bókhaldið hafi leitt í ljós sé að tekjur sjóðsins frá ríkinu, rúmar átta milljónir króna á mánuði, hafi jafnan verið færðar af bankareikningi sjóðsins og inn á reikning KÍ, þar sem þær hafi legið í nokkrar vikur. Vextir af þeim peningum hafi síðan orðið eftir á reikningi KÍ. Þórey Hilmarsdóttir, stjórnarformaður Vísindasjóðsins, segist ekki vita hversu mikla fjármuni sé þar um að tefla. Það verði reiknað síðar. „Við eigum eftir að gera kröfu á KÍ um þessa peninga og það verður ekkert mál nema ef það neitar að borga,“ segir hún. Að hennar sögn skýrir KÍ málið með innheimtukerfi sem erfitt sé að tjónka við. Þær skýringar hrökkvi þó skammt. „Ég hef ekki fengið útskýringar á þessu sem ég hef getað skilið,“ segir hún. Stjórn KÍ birti yfirlýsingu á vef sambandsins í gær þar sem málið var harmað. Þar segir að KÍ hafi fengið endurskoðendur til að fara yfir bókhaldið og þeir hafi ekki talið tilefni til alvarlegra aðfinnslna. Ekki sé annað fram komið en að meðferð fjármuna sjóðsins sé í góðu lagi. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Sjá meira