Þjóðskrá í flokki þeirra bestu 12. september 2011 04:00 Haukur Ingibergsson „
Þetta kemur okkur ánægjulega á óvart, við vissum að við værum til skoðunar en tilnefningin er framar okkar vonum,“ segir Haukur Ingibergsson, forstjóri Þjóðskrár Íslands. Alþjóðasamtök sérfræðinga á sviði fasteignamats, The International Association of Assessing Officers eða IAAO, hafa tilnefnt Þjóðskrá Íslands til æðstu viðurkenningar sem samtökin veita fyrir framúrskarandi aðferðir við mat á fasteignum og miðlun upplýsinga um matið. „Viðurkenningin er vísbending fyrir alla þá sem þurfa að nýta fasteignamat við vinnu sína um að vel sé staðið að framkvæmd matsins. Fyrir þremur árum var fasteignamatið alfarið flutt til Þjóðskrár Íslands og við höfum unnið að því að það endurspegli gangverð og raunverulegt verðmæti eignanna. Þetta styður þá tilfinningu okkar að vel hafi tekist til og það sést líka á því að undanfarin þrjú ár hefur kærum vegna fasteignamats fækkað.“ Tilkynnt verður á ársþingi IAAO í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum 20. september næstkomandi hver hlýtur viðurkenninguna en Haukur segir það sjaldan gerast að viðurkenningin falli evrópskum stofnunum í skaut. Í vali IAAO er meðal annars bent á að Þjóðskrá Íslands hafi með nýjustu tækni og aðferðum við fasteignamat skipað sér í forystu í alþjóðlegu samhengi, þrátt fyrir efnahagsþrengingar. - jma
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira