Ferðafólki ráðið frá því að ganga á Heklu 7. júlí 2011 06:30 Valgerður Brynjólfsdóttir segir alls óvíst úr hvaða gíg gos í Heklu myndi koma. „
Við ráðleggjum fólki að ganga ekki upp á Heklu eins og stendur,“ segir Valgerður Brynjólfsdóttir, sem rekur Heklusetrið á Leirubakka. „En það eru þó ekki nema tveir, þrír dagar síðan fólk var uppi á henni,“ bætir hún við. Hreyfingar mældust við Heklu um og fyrir síðustu helgi en þær hafa nú að mestu gengið til baka. Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hreyfingarnar hafi verið um 10 til 20 millimetrar, sem getur ekki talist mikið. „En það er einhver hreyfing þarna djúpt undir,“ segir hann. „Það má samt segja að hún sé tilbúin að gjósa en hvort hún gerir það á morgun eða eftir tuttugu ár, það vitum við ekki,“ bætir hann við. Hekla hefur venjulega gosið á tíu ára fresti en síðast gaus hún árið 2000. Gunnar segir að venjulega verði jarðskjálftar um einni eða tveimur klukkustundum áður en hún gýs, það væru þá mun stærri skjálftar en mældust nú. Valgerður segir afar varhugavert að vera á fjallinu þegar það er að minna á sig með þessum hætti, bæði vegna þess að fyrirvarinn getur verið afar stuttur og eins eru margir gígar á fjallinu og óvíst úr hverjum þeirra eldhafið hæfist á loft. - jse
Mest lesið Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Féll til jarðar rétt eftir flugtak Erlent Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Erlent Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Innlent Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Erlent Íslenskum fulltrúum á loftslagsráðstefnu hríðfækkar milli ára Innlent Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Erlent Fleiri fréttir Íslenskum fulltrúum á loftslagsráðstefnu hríðfækkar milli ára Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Flestir vantreysta ráðherrum Flokks fólksins Eltihrellir lögreglukvenna situr inni fyrir morð Þjófarnir margfölduðu upphæðir við millifærslur Taldi sig sjá bát hvolfa og þyrla og björgunarsveit kölluð út Ákærður fyrir að skjóta að dróna Fiskistofu Grunaðir um hundruð milljóna króna þjófnað en ganga lausir Hundruð kennara nýta gervigreind til að undirbúa kennslu „Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Starfsmaður Múlaborgar ákærður Gleðiefni að útkomuspá ársins sé á núlli Stefnt að leiðtogaprófkjöri eftir áramót og kunnugleg nöfn mögulega í pottinum Miðflokkurinn með eigið útspil í öryggis- og varnarmálum „Menn eiga ekki að vera að hnýsast í gögn sem þeim koma ekki við“ Reikna með tæplega nítján milljarða afgangi á næsta ári Tekinn í tíunda skipti dópaður og réttindalaus Uppsagnir hjá Icelandair og borgin kynnir fjárhagsáætlun næsta árs „Lífsgæðin mín hafa verið tekin aftur í burtu frá mér“ Bein útsending: Kynnir sína fyrstu fjárhagsáætlun Ölvaður en ekki barnaníðingur Líklegast að Reykjavíkurleiðin taki breytingum eftir umsagnir Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Lögreglan innsiglaði Flóka „Við vorum komin með súrefniskúta heim“ Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Sjá meira
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent