Ákærðir fyrir milljónaþjófnaði 10. júní 2011 08:15 Hallormsstaður Mestum verðmætum náðu þjófarnir hjá Skógrækt ríkisins í Hallormsstað.
Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært tvo menn um tvítugt fyrir að brjótast ítrekað inn og stela munum að verðmæti á þriðju milljón króna. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fjársvik. Þeir brutust inn í verkstæði Skógræktar ríkisins í Hallormsstað á síðasta ári. Þar stálu þeir fimm keðjusögum, að áætluðu verðmæti ríflega 1,2 milljónir króna, svo og þremur bensínbrúsum, að því er segir í ákæru. Næst lá leiðin í sumarbústað á Fljótsdalshéraði. Þar létu mennirnir greipar sópa og stálu rafmagnstækjum og borðbúnaði. Þeir reyndu að brjótast inn í annan sumarbústað en urðu frá að hverfa eftir að hafa unnið skemmdir á honum. Skömmu síðar brutust þeir inn í læstan geymslugám á Egilsstöðum og stálu þar nokkru magni af hreinlætisvörum. Næst brutust þeir inn í hafnsögubátinn Vött og stálu sjónauka, talstöð, lyfjum og fleiru. Þeir komust einnig inn á Hótel Capitano á Neskaupstað, eftir að hafa fengið lykil hjá manni og konu, sem ákærð eru í málinu fyrir þátttöku. Þar stálu þeir matvöru og áfengi fyrir nær 200 þúsund krónur. Loks sviku þeir á þriðja tug þúsunda út með greiðslukorti sem þeir höfðu stolið.- jss
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Fleiri fréttir Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Sjá meira