Deilt á bæjarfulltrúa í stríði um götuskilti 9. júní 2011 10:00 Aðgerðir á Akureyri Bjarni Thorarensen frá Akureyrarbæ kom til að fjarlægja skilti Fab Travel þegar skemmtiferðaskipið MSC Poesia kom til bæjarins. Sigtryggur Gunnarsson frá Fab Travel fylgdist með. Bjarni segir lausaskilti utan lóðar bönnuð. Skemmtiferðaskiptið Grand Princess kemur til Akureyrar í dag.Mynd/Fab Travel
Skiltið umdeilda Í bakgrunni er hið reisulega hús Fab Travel. „Það er óþolandi að bæjarfulltrúi geti að sínum geðþótta kallað út starfsmenn bæjarins á laugardegi til að rífa niður skilti frá samkeppnisaðilum,“ segir Tryggvi Sveinbjörnsson, eigandi FAB Travel á Akureyri. Þrjú kynningarskilti sem sett voru upp fyrir FAB Travel laugardaginn 28. maí voru í tvígang rifin niður. Þann dag kom fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Akureyrar. Tryggvi hefur rekið rútufyrirtæki en er að víkka út starfsemina í alhliða ferðaþjónustu. Á Strandgötu 49 verður meðal annars veitingasala og verslun með minjagripi og fatnað. Skammt frá er Ferðamannaverslunin Víkingur sem er í eigu Sigurðar Guðmundssonar, bæjarfulltrúa Bæjarlistans. „Það komu einhverjir stráklingar í víkingabúningum og hentu skiltunum niður. Þeir sögðu að eigandi Víkings hefði sagt þeim að gera þetta,“ segir Tryggvi sem kveður skiltin þrjú hafa verið sett strax upp aftur. „Þá kom maður í mótorhjólagalla sem myndaði skiltin og felldi þau svo niður. Hann sagðist vera frá Akureyrabæ. Það væri ekki leyfilegt að vera með þessi skilti. Um klukkustund síðar mætti hann aftur og var þá með hótunarbréf frá bænum þar sem sagði að ef þetta yrði gert aftur yrði beitt allt að milljón króna dagsektum,“ segir Tryggvi. Að sögn Tryggva mætti bæjarstarfsmaðurinn á staðinn þennan laugardag að undirlagi Sigurðar Guðmundssonar. „Mér finnst ámælisvert að bæjarfulltrúi geti ráðskast með starfsmenn bæjarins og kallað út lið til að argast út í þessi skilti. Það eru viðlíka skilti sem hafa engin leyfi úti um allan bæ.“ Í kjölfar þessa atviks sótti Tryggvi um leyfi fyrir skiltum og fékk leyfið með tilteknum skilmálum. „Við megum setja upp skilti til að kynna ferðir sem við bjóðum en ekki þá starfsemi sem fram fer í húsinu sjálfu. Þetta er nánast eins og einelti á þetta nýja fyrirtæki og dæmin eru fleiri.“ Sigurður Guðmundsson staðfestir að hann hafi lagt niður skiltin frá Tryggva og einnig kvartað til Akureyrarbæjar. „Ég benti þeim á að kynna sér reglugerð bæjarins um skilti. Mér þykir náttúrulega ekki eðlilegt þegar aðili í sambærilegum rekstri er með ólöglega uppsett skilti 150 metra frá sínu húsi en aðeins þrjá metra frá minni lóð,“ segir Sigurður sem hafnar því að hafa beitt áhrifum sínum sem bæjarfulltrúi á óeðlilegan hátt. „Það gerði ég að sjálfsögðu ekki. Það er hverjum manni frjálst að hringja í hvern þann sem honum sýnist.“ Skemmtiferðaskipið Grand Princess kemur til Akureyrar í dag. gar@frettabladid.is
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira