Ævintýraheimur að fæðast 9. júní 2011 08:00 10. hola Flötin á tíundu er í forgrunni myndarinnar en nýr golfskáli er hér í mynd. Hér sést í þakið á gamla skálanum sem er hugsaður til framtíðar sem gistirými fyrir kylfinga. „
Ég get fullyrt að völlurinn okkar verður hafður í hávegum af íslenskum kylfingum. Hér er að verða til ævintýraland fyrir golfáhugafólk," segir Páll Erlingsson, formaður Golfklúbbs Grindavíkur sem fagnar 30 ára afmæli í sumar. Nú hillir undir að teknar verði í notkun fimm nýjar holur og langþráður draumur um fullvaxta átján holu völl verði að veruleika hjá Grindvíkingum. Að sögn Páls er völlurinn hugsaður fyrir hinn almenna kylfing frekar en afreksfólk, þó að þeir sem hafa náð langt í íþróttinni fái um nóg að hugsa á Húsatóftavelli. „Það sem er skemmtilegt við völlinn er að hann er þrískiptur, og er ólíkur öðrum völlum á Íslandi hvað það varðar. Völlurinn er strandvöllur með gömlu holunum fyrir neðan veg, síðan þær holur sem kalla mætti hefðbundnar og að síðustu nýju holurnar í hrauninu. Hér fá menn að reyna allar hliðar íþróttarinnar í einum golfhring," segir Páll. Golfklúbbur Grindavíkur var stofnaður árið 1981 af nokkrum áhugamönnum um golf. Einn þeirra, Jóhann Möller, átti sumarhús í Staðarhverfi og hafði útbúið fjórar brautir og holur á sjávarbökkunum. Jóhann hvatti heimamenn eindregið til að koma og spila og til að stofna golfklúbb og færa út kvíarnar. Völlurinn er nú þrettán holu völlur, fimm þeirra eru á bökkunum og átta eru norðan þjóðvegarins og teygja sig inn í hraunið í austurátt. Árið 2009 var hafist handa við stækkun á vellinum í átján holur eftir teikningum frá Hannesi Þorsteinssyni golfvallahönnuði og yfirstjórn Bjarna Hannessonar vallarstjóra. Í janúar í ár var einnig ráðist í endurbætur á núverandi íbúðarhúsnæði í eigu golfklúbbsins með það að markmiði að taka það í notkun sem framtíðar golfskála árið 2012 um leið og nýi völlurinn verður opnaður. Klúbbfélagar í GG eru rúmlega 200 og koma ekki aðeins frá Grindavík heldur nágrannasveitarfélögunum einnig. Allir eru velkomnir sem sést á sérstökum kjörum fyrir öryrkja, atvinnulausa, aldraða og námsmenn. Þá má nefna að nýliðagjald kylfinga í GG er lægra en fullt gjald, en það er hugsað þannig að auðvelt sé að komast inn í klúbbinn og kynna sér hvað hann hefur upp á bjóða. Nafn vallarins dregur nafn sitt af bænum Húsatóftum en tóftir hans liggja á vellinum auk útihúsa og hjáleiga frá býlinu. Hugsun forráðamanna GG er að þessi saga fái að njóta sín og kylfingar geti kynnt sér sögu svæðisins á upplýsingaskiltum sem komið verður fyrir víða um völlinn. Þá munu nýju holurnar jafnframt bera heiti sem dregin verða af örnefnum af aldalangri nýtingu landsins sem völlurinn stendur á. Þá er hugmyndin að gera gamalt sjóhús að ræsishúsi, svo dæmi sé nefnt. Afmælismót verður haldið 3. september næstkomandi. Páll segir að þá verði gefið út afmælisblað auk annarra uppákoma. „Við ætlum að gera þetta myndarlega núna þegar gamall draumur er loksins að verða að veruleika."svavar@frettabladid.is5. hola Myndin er tekin af gulum teig en kvennateigurinn er niðri til vinstri. Hægra megin er níunda flöt. Hér sést vel hvernig nýju holurnar sniglast um hraunið en nýrri hluti vallarins er allur í hrauninu.fréttablaðið/gva
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira