Borgin vill starfsfólk Hörpunnar í strætó 7. júní 2011 07:30 Borgin segir að leysa verði fyrirséða bílastæðaeklu með heildstæðri samgöngustefnu en ekki með landfyllingu.Fréttablaðið/GVA „
Mér finnst dálítið mikið að ætlast til þess að Harpa ein standi fyrir því að kollvarpa ferðavenjum Reykvíkinga," segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar sem á og rekur tónlistarhúsið Hörpu. Totus, fasteignafélag Hörpu, fær ekki góðar undirtektir hjá skipulagsyfirvöldum Reykjavíkur við þeirri ósk að bráðabirgðalandfylling austan við húsið standi áfram og verði nýtt undir bílastæði. Í bréfi frá Totus segir að miðað við lóðahönnun verði sex stæði fyrir hópferðabíla, sextán stæði fyrir fólks- og sendibíla og áttatíu stæði fyrir reiðhjól við Hörpu. Að auki verði 545 stæði í bílastæðahúsi, þar af 420 stæði hugsuð fyrir gesti Hörpu en 125 fyrir þá sem eiga annað erindi í miðbæinn. Á bilinu 180 til 200 manns verði að störfum í húsinu að jafnaði og allt að 300 að hámarki. Mikil þörf sé á bílastæðum fyrir þennan hóp sem annars tæki stæði frá íbúum í miðbænum og viðskiptavinum þar. Þá sé aðstaða fyrir hópferðabíla ófullnægjandi og aðstaða fyrir flutning á tækjum að húsinu takmörkuð. Allt þetta „muni að óbreyttu koma verulega niður á rekstri hússins". Stefán segir að upphaflega hafi skipulag á svæðinu gert ráð fyrir að öll starfsemin þar, Harpa, Landsbankinn og fyrirhugað hótel, gæti samnýtt tæplega tvö þúsund bílastæði, enda hefðu annatímar verið mjög ólíkir. „En nú er Harpan þarna ein og nýtur ekki þessarar samnýtingar," segir Stefán. „Og þegar mikið er um að vera þá er greinilegt að 525 stæði eru engan veginn nóg fyrir gesti og starfsmenn í tónlistarhúsinu." Skipulagsráð hefur hins vegar samþykkt umsögn frá skipulagsstjóra þar sem fram kemur að áðurnefnda landfyllingu verði að fjarlægja. Rekstraraðilar Hörpu ættu að ræða við rekstraraðila almenningsvagna og sína starfsmenn um heildstæða samgöngustefnu sem meðal annars ætti að draga úr þörfum á bílastæðum. „Það er ágætt að gera það og ég held að starfsmenn hafi nú þegar talað við Strætó og óskað eftir því að Strætó hefji viðkomu við Hörpu sem fyrst. En ég held að það dugi hvergi nærri til, jafnvel þótt menn tvöfölduðu eða þrefölduðu það hlutfall sem kæmi með strætó." - gar, sh
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Sjá meira