Ráðherra vill rökstuðning vegna boranaleyfis 4. júní 2011 07:45 Katrín Júlíusdóttir Mynd/Anton Brink „
Það er augljóst að það er eitthvað að í lagaumhverfinu ef þeir telja sig knúna til að komast að þessari niðurstöðu," segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra um veitingu rannsóknarleyfis í Grændal í Ölfusi. Orkustofnun veitti leyfi til rannsókna á jarðhita, grunnvatni, yfirborðsvatni og efnisnámum á rannsóknarsvæðinu. Ráðherra hefur óskað eftir munnlegum rökstuðningi frá Orkustofnun og mun eiga fund um málið eftir helgi. Katrín segir mikilvægt að komast að því hvað knýi stofnunina til að komast að þessari niðurstöðu og boðar breytingar á lögum, komi í ljós að lögin kalli á úrskurðinn. Katrín bendir á að Grændalur sé eitt þeirra svæða sem verði líklega skilgreind sem verndarsvæði í rammaáætlun og því skjóti skökku við að gefa út rannsóknarleyfi svo skömmu áður en áætlunin taki gildi. Lög um rammaáætlun voru samþykkt á yfirstandandi þingi og þingsályktunartillaga mun líta dagsins ljós á næstu vikum, að sögn Katrínar. Ekki hefur ríkt full sátt um tillöguna meðal stjórnarflokkanna en ráðherra vonast til að samstaða ríki um tillöguna þegar hún kemur fram. Katrín bendir einnig á að sveitarfélagið Ölfus hafi ekki sett rannsóknarboranir á skipulag og ólíklegt sé að það gerist, þar sem andstaða sé við röskun á svæðinu innan sveitarfélagsins. „Allir aðilar verða að stíga varlega til jarðar þar til rammaáætlun er tilbúin. Þess vegna vil ég kanna hvort eitthvað er í lögum sem kallar á þennan úrskurð og mun grípa til ráðstafana ef svo er." Katrín telur þó óljóst að hún nái að leggja fram lagabreytingar áður en rammaáætlun taki gildi. „Aðalatriðið er að við erum að koma okkur úr vondu kerfi á þessu sviði. Úr vondu lagaumhverfi sem hefur verið götótt og inn í lagaumhverfi rammaáætlunar þar sem tekið er mið af náttúrunni frá upphafi ferlisins."- kóp
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Sjá meira