Mælt fyrir smærra kvótafrumvarpinu 30. maí 2011 07:30 Búist er við miklum umræðum um frumvörpin. Afgreiðsla þeirra gæti því tekið töluverðan tíma. Fréttablaðið/gva
Bæði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar hafa verið sett á dagskrá Alþingis. Það sama gildir um kvótafrumvarp Hreyfingarinnar. Þetta varð niðurstaðan af fundi forseta Alþingis með formönnum þingflokka síðdegis í gær. Smærra stjórnarfrumvarpið, sem kveður á um breytingar á núgildandi fiskveiðilöggjöf – hækkun veiðigjalds, strandveiðar og fleira – er fyrst á dagskránni. Mælt verður fyrir því á morgun, að því gefnu að samþykki fáist fyrir afbrigðum vegna þess að málið er það seint fram komið. Búist er við miklum umræðum um frumvarpið áður en það verður afgreitt til nefndar og því verður líklega ekki mælt fyrir hinum frumvörpunum fyrr en síðar í vikunni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggja stjórnarliðar mikla áherslu á að afgreiða smærra frumvarpið sem lög í sumar, áður en nýtt fiskveiðiár hefst í september. Stefnt er að því að koma því stærra, sem snýst um grundvallarkerfisbreytingar, í umsagnarferli fyrir sumarfrí. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að enn standi yfir samningaviðræður um það hvernig þinghaldinu verði hagað fram að 9. júní, en þá á þingi að ljúka samkvæmt starfsáætlun. Forsætisráðherra hefur sagt að hann telji jafnvel þörf á sumarþingi ef ekki takist að afgreiða stjórnarfrumvörpin fyrir þinglok, en Ásta segir hins vegar að það sé stefna þingforseta að halda starfsáætlun. - sh
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira