Efast um umhverfisuppeldið 28. maí 2011 10:00
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra varpaði þeirri spurningu fram á aðalfundi Landverndar á fimmtudag hvort það væri uppeldislegt atriði að umgengni við landið er ábótavant, eins og nýleg dæmi sönnuðu. Svandís sagði umgengnina við landið endurspeglast í því sem fólk skildi eftir sig á víðavangi, frágangi sorps, efnamenguðum jarðvegi, óhreinu vatni og því sem við slepptum út í andrúmsloftið. Hún staldraði sérstaklega við mengun frá sorpbrennslustöðvum og frá einstökum verksmiðjum sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum frá áramótum. „Þegar slík mál koma upp er rétt að staldra við og spyrja hvað veldur. Hvers vegna umgengni okkar við landið er svo ábótavant sem raun ber vitni. Er það af hreinni græðgi eða kemur hugsunarleysi eða þekkingarleysi við sögu? Hvað stýrir því að við erum á stundum skeytingarlaus og of værukær þegar kemur að okkar eigin umhverfi? Er eitthvað að viðhorfi okkar til náttúrunnar – eitthvað í uppeldinu sem skortir?" spurði umhverfisráðherra aðalfundargesti. Hún bætti við að auðvitað væri uppeldi einstaklingsbundið og rangt að alhæfa um uppeldi heillar þjóðar í þessum efnum; skólarnir gegndu mikilvægu hlutverki og á síðustu árum hefði margt breyst til batnaðar.- sháÍ Fréttablaðinu í dag var sagt að Jóhanna Sigurðardóttir hefði varpað spurningunni fram á aðalfundinum. Beðist er velvirðingar á því.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira