LÍÚ segir alls ekki farið á svig við kjarasamningana 28. maí 2011 07:00 Friðrik J. Arngrímsson. Útvegsmenn eru óánægðir með þá fullyrðingu Jóns Steinssonar hagfræðings að ýmislegt bendi til að fiskur sé seldur á undirverði til að fara á svig við kjarasamninga sem Fréttablaðið greindi frá í gær.
Þorskur Frá því að viðmiðunarverð var tekið upp við sölu fisks til eigin vinnslu árið 2001 hefur verð þorsks sveiflast á bilinu 87 til 99 prósent af ákveðnu hlutfalli. Viðmiðunarverðið hefur á tímabilinu verið 92 til 95 prósent. Forsvarsmenn LÍÚ segja um mjög gegnsætt og skýrt ferli að ræða. Fréttablaðið/stefán „Í hverjum einasta mánuði hittast sjómenn og útvegsmenn og fara yfir þessi verð. Verðlagsstofa skiptaverðs fylgist auk þess með þeim. Ef grunur vaknar um að ekki sé verið að fylgja reglum um viðmiðunarverð þá er hægt að vísa því til úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Þar hefur ekki fallið dómur í langan tíma,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Þannig svarar hann fullyrðingum Jóns Steinssonar, dósents í hagfræði við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, sem segir ýmislegt benda til að útgerðin selji fisk á undirverði til tengdra aðila til að lækka hlut sjómanna samkvæmt kjarasamningum. „Ef við tökum þorskinn sem dæmi þá höfum við haft tólf mánaða viðmið um þessi verð frá árinu 2001 sem við eigum að reyna að liggja sem næst. Viðmiðið er vegið meðaltal af verði á fiskmarkaði og því sem borgað hefur verið þegar eigin aðili stundar vinnslu. Hið raunverulega verð hefur sveiflast í kringum viðmiðið eins og eðlilegt er en það er augljóst að því hefur ekki verið haldið kerfisbundið niðri,“ segir Friðrik. Jón hefur skoðað samband fiskverðs og framlegðar í vinnslu á Íslandi. Hann telur sambandið óeðlilega mikið sem bendi til að fiskur hafi verið seldur á undirverði. Þá sé þetta sennilega meira stundað í uppsjávarfiski en bolfiski þar sem virkari fiskmarkaður sé til staðar í bolfiski og þar með augljósari viðmiðunarverð. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, segir hins vegar margt geta valdið því að framlegð í vinnslu sé breytileg milli ára. Þau ár sem framlegðin hafi verið sérstaklega mikil hafi sama þróun verið hjá þeim fiskvinnslum sem hafa enga tengda aðila til að kaupa fisk af. Það bendi til þess að Jón hafi rangt fyrir sér. „Það verð sem miðað er við þegar útgerðin greiðir sjómönnum laun í þeim tilvikum þar sem fiskurinn kemur frá eigin útgerð er yfirleitt í kringum 75 til 80 prósent af verði á fiskmarkaði en munurinn skýrist af sölukostnaði. Svona eru bara þeir kjarasamningar sem til eru og það er bara ekki rétt að farið hafi verið á svig við þá,“ segir Friðrik enn fremur. Þá sé mjög mikilvægt að hafa það í huga að ef grunur vaknar um að menn séu ekki að fylgja þessum reglum þá hafa sjómenn úrræði til að bregðast við því. „Þetta er mikil ásökun og alvarleg en hún á ekki við rök að styðjast. Auðvitað eru alltaf einhverjir svartir sauðir í greininni eins og alls staðar en þessi fullyrðing stenst ekki skoðun,“ segir Friðrik. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent