Atferlismat sker úr um framhaldið 18. maí 2011 06:00 Dalmatíuhundur sem réðist á bréfbera mun á næstunni gangast undir atferlismat til að skera úr um hvort hann verði svæfður. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Hundurinn sem réðist á póstburðarkonu í Mosfellsbæ í fyrradag, með þeim afleiðingum að hún féll við og fótbrotnaði, mun gangast undir atferlismat á næstu dögum, en þar verður skorið úr um hvort dýrinu verður lógað. Hafdís Óskarsdóttir, hundaeftirlitsmaður bæjarins, sagði í samtali við Fréttablaðið málið komið inn á borð til heilbrigðisfulltrúa bæjarins. Hún hafi þó strax í gær farið og kynnt eigendum hundsins næstu skref í málinu. „Þegar svona gerist verður hundurinn framvegis að vera með munnkörfu utandyra. Í framhaldinu fer hann svo í atferlismat sem sker úr um framhaldið.“ Hafdís segir að komi hundar illa út úr atferlismati séu þeir svæfðir, annars fái þeir að lifa með því skilyrði að þeir séu með munnkörfu utandyra. Hafdís vill annars hvetja alla hundaeigendur til þess að kynna sér reglur um lausagöngu hunda og fylgja þeim. Ágústa Hrund Steinarsdóttir, talsmaður Póstsins, sagði í samtali við Fréttablaðið að bréfberar fyrirtækisins mættu sleppa því að bera út í hús, sé ógnandi hundur framan við húsið. Þá séu námskeið í umgengni við hunda reglulega í boði fyrir bréfbera. - þj
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira