Ennþá er óhætt að klippa trjáplöntur 28. apríl 2011 10:00 Þrátt fyrir að komið sé undir lok apríl er enn ekki of seint að klippa trén í garðinum.Fréttablaðið/Hörður
Þrátt fyrir að komið sé fram í lok apríl og farið sé að örla á síðbúnu sumri er enn ekki of seint að klippa garðplöntur líkt og tré og runna. Að sögn Ingvars Magnússonar, skrúðgarðyrkjufræðings og annars eiganda fyrirtækisins Garðmeistara ehf., hefur kalsatíðin sem verið hefur í vor haft þau áhrif að gróður fer mjög seint af stað þetta árið. Því mæli ekkert gegn því að að klippa tré um þessar mundir. „Þetta er bara rétt að komast af stað núna,“ segir Ingvar og bætir við að í raun sé ekkert sem banni að klippa flestallar tegundir allan ársins hring. Þó sé jafnan betra að klippa plönturnar þegar þær eru enn í vetrardvala. „Það er alltaf betra að klippa áður en fer að blæða úr sárunum, en blæðingarnar byrja þegar allt er komið af stað í trjánum. En þetta fer annars allt eftir tegundum. Sumar þeirra þola vel að vera klipptar á sumrin en aðrar ekki, þannig að það er ekki hægt að nefna einhvern einn tíma sem er best til þess fallinn að klippa.“ Ingvar segir að garðyrkjufyrirtæki séu enn á fullu að klippa í görðum fólks og verði að því um það bil fram í miðjan maí, þegar þau snúi sér að öðrum verkefnum. Spurður segir hann að í raun sé ekki hægt að ræða um að tré séu klippt of snemma árs. „Nei, það er ekki svo. Eins og staðan er núna hjá okkur erum við að klára síðustu kúnnana í trjáklippingum og förum svo út í hellulagnir, en yfirleitt eru garðyrkjumenn að byrja klippingar jafnvel strax í janúar. Nú hefur verið svo mikill snjór að þessi vinna fór seinna af stað, því að það er erfitt að klippa þegar snjór er á trjám.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira