Efast um vilja Ögmundar til að flytja Landhelgisgæsluna 28. apríl 2011 05:00 Starfsemi Landhelgisgæslunnar verður ekki flutt til Reykjanesbæjar á næstunni eftir að hagkvæmnimat leiddi í ljós aukinn rekstrarkostnað. Þingmaður svæðisins er ósáttur við niðurstöðuna, en ráðherra segir að flutningur sé ekki sleginn af borðinu til lengri tíma.
Þingmaður Suðurkjördæmis segist efast um að nokkurn tíma hafi staðið til að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja og efast um heilindi Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í málinu. Hugmyndum um flutning Gæslunnar hefur verið skotið á frest um óákveðinn tíma eftir að niðurstaða hagkvæmnimats, sem gert var fyrir innanríkisráðuneytið, leiddi í ljós að rekstrarkostnaður Gæslunnar gæti aukist um tæpar 700 milljónir á ári við flutningana. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks úr Suðurkjördæmi, segir í samtali við Fréttablaðið að ef flutningur verði sleginn af, séu þau vinnubrögð ríkisstjórnarinnar vanvirðing við íbúa svæðisins. „Það eru sex mánuðir liðnir frá fundinum í Reykjanesbæ þar sem ríkisstjórnin kynnti aðgerðir fyrir Suðurnesin og þetta var helsta trompið. Ég held að það hafi aldrei staðið til af hendi Ögmundar Jónassonar að flytja Gæsluna. Mér sýnist þetta hafa verið yfirvarp hjá stjórninni til að kaupa sér tíma í áframhaldandi aðgerðarleysi." Í samtali við Fréttablaðið segir Ögmundur að stjórnvöld hafi unnið málið af heilindum. „Við hefðum ekki ráðist í þessa hagkvæmnikönnun ef hún hefði verið einhver sýndarmennska," segir Ögmundur og leggur áherslu á að flutningur sé ekki útilokaður. „Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er það staðreynd að flutningur mun hafa í för með sér umtalsvert aukinn rekstrarkostnað, en við erum ekki búin að slá út af borðinu þessar hugmyndir til lengri tíma litið. Heildarhagsmunir kunna að hníga í þá átt að flytja Gæsluna, en það gerum við ekki nú þegar ríkissjóður er galtómur." Í matinu kemur fram að stærstur hluti aukins rekstrarkostnaðar liggi í nauðsynlegum breytingum á starfsmannahaldi. Vegna staðsetningar muni Gæslan þurfa að fjölga starfsfólki og einnig breyta vaktafyrirkomulagi þannig að starfsfólk verði á viðveruvakt en ekki bakvakt eins og nú er. Þá er þess getið að breytingar á Njarðvíkurhöfn, þar sem varðskip Gæslunnar myndu vera staðsett, myndu kosta um 250 milljónir og breytingar á húsnæði við Keflavíkurflugvöll yrðu líka kostnaðarsamar. Í matinu kemur einnig fram að ýmsir vankantar séu á núverandi aðstöðu Gæslunnar, og þó að hún sé viðunandi til skemmri tíma litið sé úrbóta þörf þegar horft er til lengri tíma. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, ekki hafa kynnt sér niðurstöðu matsins og gæti því ekki tjáð sig um efnisatriði hennar. „En það eru mikil vonbrigði að heyra að þetta sé niðurstaðan í máli sem menn báru miklar væntingar til." thorgils@frettabladid.isRAgnheiður Elín Árnadóttir
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Sjá meira