Lokun flugvalla var réttlætanleg 26. apríl 2011 06:00 „
Við sýndum fram á að þessi gjóska er mjög fínkornótt þannig að hún barst langt með loftstraumum,“ segir Sigurður R. Gíslason, jarðvísindamaður við Háskóla Íslands, sem stjórnaði ásamt Susan Stipp við Kaupmannahafnarháskóla rannsókn á gjóskunni úr eldgosinu í Eyjafjallajökli á síðasta ári. „Þessi gjóska var hættuleg við innöndun og sum efnanna í henni voru hættuleg umhverfinu,“ segir Sigurður. Hins vegar segir hann það hafa verið heppilegt fyrir Íslendinga að fyrsta gjóskulagið, sem barst úr gígnum þegar vatn var enn í honum, innihélt ekki þessi hættulegu efni og hlífði jarðveginum þegar hættulegri efnin bárust síðar. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að lokun flugvalla hafi verið réttlætanleg í ljósi þess tjóns sem gjóskan hefði getað valdið. „Ef hún hefði lent á flugvélum hefði hún sandblásið þær þannig að gluggar hefðu getað orðið ógegnsæir. Efnasamsetning og kristallategund gjóskunnar var auk þess þannig að hún myndi bráðna í hreyflum flugvélanna og síðan storkna í kaldari hluta vélanna, þannig að hún hefði getað stoppað hreyflana.“ Niðurstöður rannsóknanna eru birtar í dag í tímariti bandarísku vísindaakademíunnar, PNAS. - gb
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira