Tekur púlsinn á samfélaginu 17. apríl 2011 17:00 Einar Snorri hvetur fólk frekar til að borga fyrir góða ljósmynd af sjálfu sér en að kaupa nýjar gallabuxur.Fréttablaðið/valli
Plötuðu Gwen Stefani í Myndatöku Einar Snorri og félagi hans Eiður voru fengnir til að mynda hljómsveitina No Doubt þegar hún var við það að skjótast upp á stjörnuhimininn. Þeir félagarnir heilluðust strax af söngkonunni Gwen Stefani en var bannað að taka af henni andlitsmynd einni enda átti myndatakan að vera af allri sveitinni. „Ég var staðráðinn í að ná af henni einni portrettmynd enda er hún með frábært andlit og náði ég að taka þessa mynd á Polaroid-vél undir þeirri yfirskrift að ég væri að prufa ljósið. Ég er mjög ánægður með hana.“ mynd/Einarsnorri Einfalt og tímalaust eru orðin sem lýsa best stíl ljósmyndarans Einars Snorra. Með Gwen Stefani og hljómsveitina R.E.M. á ferilskránni býður Einar Snorri Íslendingum upp á myndatöku gegn vægu verði næstu daga en hann er að sanka að sér efni í nýja portrettbók. „Það hefur blundað í mér lengi að kýla á þetta verkefni, gera aðra bók með mismunandi andlitum. Þegar Sissa (innsk. bl. eigandi ljósmyndaskóla Sissu) fór þess á leit við mig að koma heim og halda fyrirlestur fyrir nemendur skólans ákvað ég að slá tvær flugur í einu höggi. Halda fyrirlestur og safna efni í bókina í leiðinni,“ segir Einar Snorri en hann býr í Berlín þar sem hann vinnur við ýmislegt tengt kvikmyndagerð og að mismunandi ljósmyndaverkefnum. Einar Snorri hefur nú þegar gefið út tvær ljósmyndabækur í samvinnu við félaga sinn Eið og einna frægust er hin svokallaða Kaffibarsbók þar sem fastagestir barsins á fyrri hluta tíunda áratugarins voru festir á filmu. „Alveg síðan ég byrjaði að taka myndir hef ég verið hrifinn af portrettforminu. Andlit spegla raunveruleikann og sálina. Þess vegna finnst mér tímabært að gera aðra bók núna og taka púlsinn á samfélaginu á þessum skrýtnu tímum,“ segir Einar Snorri en hann stefnir að því að safna yfir 100 myndum í bókina og vill meina að það skapist flott áhrif þegar mörg andlit eru samankomin á einum stað. Hann hvetur því sem flesta til að koma, borga vægt verð og fá í staðinn lítið listaverk af sjálfum sér. „Það er vanmetið hversu dýrmætt það er að eiga góða mynd af sjálfum sér. Góð minning sem maður á alla ævi. Frekar að borga fyrir það en að kaupa sér nýjar gallabuxur,“ segir Einar Snorri en áhugasamir geta sent póst á netfangið krunkproductions@gmail.com og pantað sér tíma í myndatöku. Verðið er 25.000 krónur og innifalið er ein útprentuð mynd ásamt geisladiski með völdum römmum. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira