Liam í fatahönnunarstríð 5. apríl 2011 12:00 Liam Gallagher er snillingur í að eignast óvini og sendi Jay-Z tóninn nú fyrir helgi. Hann vill meina að fólk verði handtekið ef það klæðist fötum frá fatalínu Jay-Z en Liam hefur sjálfur sett á fót fatamerki undir nafninu Pretty Green og hefur eignast fylgismenn á borð við Joe Cole og David Bentley.Nordicphotos/Getty
Breski ólátabelgurinn Liam Gallagher, fyrrverandi söngvari Oasis, er þekktur fyrir allt annað en að liggja á skoðunum sínum um menn og málefni. Hann hefur nú sent Jay Z-tóninn fyrir fatalínuna hans. Liam Gallagher er smám saman að komast aftur upp á afturlappirnar eftir að hljómsveitin Oasis liðaðist í sundur eftir áralangar deilur Galagher-bræðranna Liams og Noels um strauma og stefnur. Hann er byrjaður í nýrri hljómsveit, Beady Eye, og hefur sett á markað nýtt tískumerki undir nafninu Pretty Green. Það hefur vakið töluverða athygli í tískuheiminum og knattspyrnustjörnur á borð við Joe Cole og David Bentley, sem báðir hafa þó mátt sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá sínum félagsliðum, vilja nánast eingöngu ganga í fötum frá merkinu. Gallagher, sem er sjálfur harður stuðningsmaður Manchester City, þekkir þá list best allra að vekja athygli á sjálfum sér og sínum vörum og ákvað því að beina sjónum sínum að tískumerki rapparans Jay-Z, af einhverjum ókunnum ástæðum, kannski af öfundsýki enda selur Jay -Z föt fyrir 436 milljónir punda á ári hverju undir nafninu Rocawear. Samkvæmt Daily Star finnst Liam föt rapparans ákaflega ljót. „Þú lendir bara í vandræðum við laganna verði ef þú ert í fötunum frá Jay-Z," hefur blaðið eftir söngvaranum, sem hefur aldrei efast um eigið ágæti, hvað þá gæði tískulínunnar sinnar. Daily Star rifjar upp í kjölfarið að Gallagher-bræðurnir gætu kannski fundið sinn samhljóm í einhliða stríðinu við Jay-Z, því fyrir þremur árum gagnrýndi Noel Gallagher rapparann harðlega fyrir að vera opnunaratriði Glastonbury-hátíðarinnar. „Sú hátíð er byggð á gítarhefð. Ef eitthvað er ekki bilað þá á ekkert að gera við það."
Mest lesið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Lífið Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Lífið „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Lífið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið Amman helsta fyrirmynd tískudrottningar Reykjavíkur Tíska og hönnun Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Menning Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Lífið Kemur út sem pankynhneigð Lífið „Pylsa“ sækir í sig veðrið Lífið Fleiri fréttir „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Dúnmjúkir pizzasnúningar Fáklædd og glæsileg við sundlaugarbakkann Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Elskar Kennedy þó þeir ræði lítið pólitík í matarboðum Kennir kettinum hundatrix og heklar á hann föt Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Sjá meira