Gísli Örn leikstýrir Hróa hetti 2. apríl 2011 13:30 Gísli Örn leikstýrir Hróa hetti í jólasýningu Konunglega Shakespeare-leikhússins. Fréttablaðið/Valli
Gísli Örn Garðarsson leikstýrir jólasýningu Konunglega Shakespeare-leikhússins, eins virtasta og stærsta leikhúss Bretlands, á þessu ári. Sýningin verður leikgerð Davids Farr eftir sögu Hróa hattar, einnar þekktustu þjóðsagnapersónu Englands, sem rændi frá þeim ríku og gaf hinum fátæka. „Ég hugsaði mig auðvitað tvisvar um, það er margt á döfinni hjá okkur í Vesturporti og maður leiddi hugann að því. Þetta er síðan auðvitað eitt af virtustu leikhúsum í heimi,“ segir Gísli þegar Fréttablaðið nær tali af honum á miðri æfingu Húsmóðurinnar, leikverks Vesturports sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu hinn 27. apríl. Gísli hefur þegar fengið Börk Jónsson til að gera leikmynd sýningarinnar og hann útilokar ekki að fleiri íslenskir listamenn komi við sögu. „Maður verður að nýta svona tækifæri til að gefa fólki færi erlendis og prófa nýja hluti.“ Um er ræða gríðarlega stóra sýningu með tólf leikurum plús hljómsveit. Leikhúsið leggur mikið í hana enda verður þetta fyrsta sýningin eftir gagngerar endurbætur á leikhúsinu sjálfu sem gera það að tæknilega best útbúna leikhúsi Bretlands. „Þetta býður upp á heilan leikvöll fyrir mig að leika mér með.“ Leikverkið er hugsað sem fjölskyldusýning og Gísli segir handrit Farrs vera þrususkemmtilegt. „Við unnum auðvitað saman að Hamskiptunum. Hróa er stillt upp sem þjófi, það fá hausar að fjúka og þetta gæti orðið svolítið groddaralegt.“ Undirbúningur hefst strax að lokinni frumsýningu á Húsmóðurinni og verkið verður síðan frumsýnt hinn 1. desember.- fgg
Menning Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira