Hundruð milljóna króna ekki nýttar 28. maí 2011 12:45 Reyna á að ná samningum við tannlækna um tannviðgerðir barna. Um 200 til 400 milljónir króna hafa verið afgangs á undanförnum árum af þeirri fjárhæð sem ætluð er til endurgreiðslu tannlæknareikninga. Mynd/Vilhelm
Undanfarin ár hefur afgangur af fjárlögum sem nota má til endurgreiðslu tannlæknareikninga numið um 200 til 400 milljónum króna á ári þar sem endurgreiðsluskrá Sjúkratrygginga Íslands hefur ekki hækkað samhliða hækkun á fjárlögum. Afgangurinn safnast ekki upp, að því er Steingrímur Ari Arason forstjóri greinir frá. „Þessar fjárhæðir fara í hítina. Þegar tryggingarnar í heild eru gerðar upp er kostnaðurinn orðinn meiri en áætlað var.“ Steingrímur segir stöðuna orðna óviðunandi. „Það hafa ekki náðst samningar við tannlækna og ég þykist vita að menn hafi óttast að yrði endurgreiðslugjaldskráin hækkuð einhliða myndi það fyrst og fremst leiða til þess að tannlæknar hækkuðu verðið hjá sér þannig að sjúklingar nytu þá ekki góðs af. Nú hafa menn hins vegar einsett sér að horfa til barna og reyna að ná samningum um tannviðgerðir þeirra en halda hinum hópunum, öldruðum og öryrkjum, í óbreyttu kerfi til þess að byrja með.“ Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir tannlækna hafa gert athugasemdir vegna þessa mikla afgangs við yfirvöld í mörg ár. „Samkvæmt lögum á að veita þessum fjármunum til fólksins í landinu en kerfið nær ekki að klára þetta. Við höfum rætt þetta við landlækni, umboðsmann barna, stjórnmálamenn og heilbrigðisráðherra. Nú fá börn endurgreitt 75 prósent af ráðherragjaldskrá. Við bentum á að ef þau fengju 100 prósenta endurgreiðslu væri það leið til þess að klára afganginn en það þótti ómögulegt.“ Það er mat Sigurðar að praktískar ástæður séu fyrir því að ekki hafi fengist nógu margir tannlæknar til þess að taka þátt í átaksverkefninu um gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir börn tekjulágra foreldra sem standa á yfir í sumar. „Menn skilja ekki stofuna sína eftir verkefnalausa. Það kostar að reka hana og greiða laun. Sjálfur er ég til dæmis bókaður einn til tvo mánuði fram í tímann. Þetta er öðruvísi en átakið sem við áttum frumkvæði að fyrir tveimur árum til þess að vekja athygli á vandamáli sem við vorum búin að horfa á í mörg ár. Þá unnum við á laugardögum og tókum ekkert gjald fyrir. Það er leiðinlegt að menn haldi að við séum að skemma fyrir þessu átaki því að viljum sannarlega leysa þetta, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Erlent Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Innlent Fleiri fréttir „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Sjá meira