Yfir 200 milljónir til Breiðavíkurdrengja 28. maí 2011 09:45 Flestir vistmenn hafa samþykkt sáttaboðin sem þeim voru send. Meðalbætur til vistmanna eru um 3,6 milljónir. Alls barst 121 umsókn um bætur. Flestir hafa samþykkt sáttaboðin og er greiðslum að mestu lokið. Helmingur á Kumbaravogi sótti um og meirihlutinn úr Heyrnleysingjaskólanum. Mynd/Stefán
Greiddar hafa verið á þriðja hundrað milljónir króna úr ríkissjóði til Breiðavíkurdrengja frá því að greiðslur hófust í aprílbyrjun. Meðalbæturnar til vistmanna eru um 3,6 milljónir króna, að sögn Halldórs Þormars Halldórssonar, lögfræðings hjá Sýslumanninum á Siglufirði sem ákvarðar bæturnar. „Þessum greiðslum er að mestu lokið. Alls barst 121 umsókn en vistmenn á Breiðavíkurheimilinu, sem starfrækt var frá 1952 til 1979, voru að minnsta kosti 155 en jafnvel 159,“ greinir Halldór frá. Hann segir sáttaboð hafa verið send út í mars en þar sem enn hafi ekki borist svör við þeim öllum sé óljóst um niðurstöðu í nokkrum málum. Eftir er að afgreiða fjórar umsóknir. „Einn einstaklingur hefur þegar sent erindi til úrskurðanefndar um sanngirnisbætur sem getur ákvarðað hærri bætur eða talið sáttaboð fullnægjandi. Óvíst er um nokkur sáttaboð en þau eru innan við tíu. Aðrir hafa samþykkt sáttaboðin.“ Að sögn Halldórs voru greiddar tvær milljónir strax til hvers einstaklings. „Samkvæmt lögum ber að geyma allt umfram tvær milljónir í 18 til 36 mánuði. Það fengu þó nokkrir sáttaboð upp á fjórar milljónir króna eða meira, en það er ekki útilokað að sumir fái síðar viðbótarbætur, hafi þeir orðið fyrir miska á öðrum vistheimilum.“ Áætlað var að heildarbætur gætu numið 300 milljónum króna. „Þessi tala hefur verið svolítið á reiki þar sem fjárþörfin hefur verið metin svolítið eftir því sem málið hefur unnist. Þetta er á sérstökum fjárlagalið. Tengiliður vistheimila er á sama fjárlagalið. Rannsóknarnefndin er á öðrum fjárlagalið,“ tekur Halldór fram. Hann getur þess jafnframt að sýslumannsembættið á Siglufirði hafi ekki fengið neina aukafjárveitingu vegna þessa verkefnis. Á næstu dögum verða send sáttaboð til þeirra sem voru vistmenn á Kumbaravogi. „Vistmenn þar voru 32 en 15 sóttu um bætur. Sumir vistmanna greindu frá harðræði en aðrir sögðu vistina hafa verið ágæta.“ Alls hafa 120 af þeim 175 sem voru í Heyrnleysingjaskólanum sótt um bætur, segir Halldór. Auglýst verður í sumar vegna bóta til þeirra sem dvöldu í Reykjahlíð og á Bjargi. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira