Segja tillögurnar litlu skila 3. mars 2011 07:00 Líf Magneudóttir
Fulltrúar minnihlutans í menntaráði Reykjavíkurborgar telja að lítill fjárhagslegur ábati verði að fyrirhuguðum sameiningum og hagræðingu í skólakerfi borgarinnar sem kynnt verða í borgarráði í dag. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menntaráði, segir meðal annars í grein í Fréttablaðinu í dag að hugmyndirnar sem fram eru komnar feli aðeins í sér hálfs prósents lækkun á útgjöldum borgarinnar til grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila, þegar hagræðingin er að fullu komin til framkvæmda. Fyrir utan það, átelur minnihlutinn þær hugmyndir sem fram eru komnar og segir fagleg vinnubrögð fyrir borð borin. Líf Magneudóttir, fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði, segir í samtali við Fréttablaðið að ávinningurinn af breytingunum sé óverulegur. Þá sé hún óánægð með vinnuferlið og svartsýn með árangur þar sem meirihlutinn sé ekki að vinna í sátt við fagaðila. „Það er ekki svo mikið sem sparast miðað við það rask sem verður á starfinu í skólunum. Tal meirihlutans um fagleg sjónarmið eru eftiráskýringar, því þau eru að ráðast í þetta einvörðungu til að skera niður en ekki til að bæta faglegt starf, þrátt fyrir yfirlýsingar um faglegan ávinning og tækifæri. Við í Vinstri grænum hefðum viljað hagræða alls staðar annars staðar en á mennta- eða velferðarsviði." Þorbjörg Helga segir í grein sinni að „þegar öllu er til tjaldað ætlar vinnuhópurinn að sameiningar skóla sem lagðar eru til lækki heildarútgjöld leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila ekki nema um hálft prósent þegar hún er komin fram að fullu árið 2014. Slík hagræðing réttlætir engan veginn það rask og óróa sem óumflýjanlegt er í skólum og frístundaheimilum borgarinnar í kjölfarið." Hún bætir því við að faglegur ávinningur, sem var ein af forsendum verkefnisins, sé enn óljós. „Farsælast hefði verið að viðurkenna í skýrslunni að enginn trygging sé fyrir því að faglegur ávinningur náist fram með sameiningu skóla." Meirihlutinn hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 13 í dag þar sem áætlanirnar verða kynntar. thorgils@frettabladid.isSAmeiningar kynntar Meirihlutinn í borgarstjórn mun kynna tillögur sínar til hagræðingar í skólakerfinu í dag. Minnihlutinn segir óverulegan ávinning af aðgerðunum.Fréttablaðið/Stefán
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira