Ari Eldjárn stekkur á milli sýninga 1. mars 2011 06:00 Ari Eldjárn verður með uppistand sama kvöld og gamanmyndin Okkar eigin Osló, eldskírn hans á hvíta tjaldinu, verður frumsýnd. "
Við ákváðum að halda skemmtunina í Þjóðleikhúsinu fyrir löngu. Það sökk í mér hjartað þegar ég fékk boðsmiðann á frumsýningu Okkar eigin Osló,“ segir grínistinn Ari Eldjárn. Ari og félagar í grínhópnum Mið-Íslandi halda fyrsta uppistandskvöldið sitt á árinu í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld. Hálftíma áður en skemmtunin hefst verður gamanmyndin Okkar eigin Osló frumsýnd, en Ari fer með hlutverk í henni og er því um frumraun hans á hvíta tjaldinu að ræða. Hann neyðist því til að velja á milli, eða hvað? "Ég er að spá í að reyna, ef ég get, að mæta á myndina og hugsanlega vera þá seinastur til að troða upp í kjallaranum,“ segir Ari, augljóslega á milli steins og sleggju. "Mig langar samt líka að vera í kjallaranum allt kvöldið. Ég hugsa að þetta endi á því að ég sjái fyrsta hálftíma myndarinnar, fari svo og troði upp með öllum og fari svo í partíið eftir frumsýninguna án þess að vita hvernig myndin endaði.“ En heldurðu að Þorsteinn [Guðmundsson, handritshöfundur og einn af aðalleikurum Okkar eigin Osló] verði sár? "Það get ég ekki ímyndað mér. Hann hefur fullan skilning á þessu. Enda er hann með leikjahærri uppistandsmönnum landsins. Hann veit hvernig þetta er.“ Ásamt Ara koma þeir Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson og Jóhann Alfreð Kristinsson fram á uppistandskvöldinu ásamt Sólmundi Hólm, sem verður sérstakur gestauppistandari. - afb
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira