Unnu við verstu mynd ársins 1. mars 2011 00:01 „
Ég get ekki annað sagt en að hún sé vel að þessu komin," segir brellumeistarinn Haukur Karlsson. Ævintýramyndin The Last Airbender sem hann starfaði við ásamt Jóhannesi Sverrissyni hlaut Razzie-skammarverðlaunin í Hollywood sem versta mynd síðasta árs. Leikstjóri hennar er M. Night Shyamalan, höfundur The Sixth Sense, og fóru brellutökur Hauks og Jóhannesar fram í fimbulkulda á Grænlandi, eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu. „Þegar ég fór að sjá hana í bíó var það eiginlega hálf pínlegt. Það sem ég gerði, Grænlandsparturinn, gerðist á fyrstu tíu mínútunum. Það var mikið spáð í því að halda ekkert áfram eftir hlé en maður lét sig nú hafa það," segir Haukur og getur ekki annað en hlegið að Razzie-verðlaununum. „Það fyndnasta af öllu er að hún kom ekki út í tapi. Myndin kostaði 150 milljónir dollara en þénaði tvö eða þrjú hundruð." Haukur vann á sínum tíma við myndina The Flags of Our Fathers, sem var tilnefnd til tvennra Óskarsverðlauna, sem er himinn og haf frá Razzie-verðlaununum. „Verður maður ekki að prófa að vera báðum megin á skalanum," segir hann léttur. Haukur rekur núna brellufyrirtæki með Jóhannesi og tveimur Dönum sem hann kynntist við gerð The Last Airbender. Þeir unnu saman að dönsku myndinni ID:A sem verður frumsýnd í haust og er dýrasta hasarmyndin sem var gerð í Skandinavíu í fyrra. - fb
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira