Eigandi vatnsbóls vill að Mosfellsbær borgi 1. mars 2011 00:00 Þórarinn Jónsson í Laxnesi 1 vill að bæjarsjóður greiði landeigendum fyrir 5,3 milljónir lítra af neysluvatni sem lögmaður hans áætlar að hafi runnið til Mosfellinga frá árinu 1970.FRéttablaðið/Anton
Meðeigandi Mosfellsbæjar í jörðinni Laxnesi 1 krefst þess að bærinn borgi fyrir vatnstöku úr landinu síðustu 40 árin. Bæjarráð hafnar því og vísar í staðinn í samkomulag við aðra meðeigendur að jörðinni um vegagerð í Laxnesi. Þórarinn Jónsson, hesta- og ferðaþjónustubóndi í Laxnesi 1, á tæp 6 prósent í jörðinni. Mosfellsbær á fjórðung jarðarinnar og Ragnheiður K. Hansson 44 prósent. Þá eiga hinar þekktu Wathne-systur þrjár hver sex prósent landsins og dánarbú móður þeirra önnur sex prósent. Jörðin er í óskiptri sameign. Jón Gunnar Zoëga hæstaréttarlögmaður hefur nú fyrir hönd Þórarins óskað eftir því að Mosfellsbær greiði meðeigendum sínum í Laxnesi fyrir töku vatns úr landinu frá árinu 1970. Miðar lögmaðurinn við upplýsingar frá bænum sjálfum um vatnstöku síðustu ára og áætlar að vatnsnotkunin sé orðin tæplega 5,3 milljónir rúmmetra þessi fjörutíu ár. Vatnsbólið í Laxnesi er svokölluð Guddulaug. Jón Gunnar stakk upp á að fengnir yrðu dómkvaddir matsmenn til að meta verðmæti vatnsins. Eftir að því var ekki svarað af hálfu Mosfellsbæjar hafði hann samband við Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hann kveðst í nýju bréfi til bæjarins hafa fengið upplýst að verð á rúmmetra af vatni sé 24,18 krónur. Þess vegna sé skuld Mosfellsbæjar nú við eigendur Laxness orðin ríflega 127 milljónir króna. Bæjarráð Mosfellsbæjar segist í svari til lögmanns Þórarins enga afstöðu taka til verðmats vegna vatnstökunnar í Laxnesi 1. „Bæjarráðið minnir á að allar hugsanlegar kröfur vegna vatnstökunnar, ef um réttmætar kröfur er að ræða sem eldri eru en fjögurra ára, eru fyrndar," segir bæjarráðið en bætir hins vegar við að það vilji samstarf við Þórarin um viðhald vegar og deiliskipulag í Laxnesi. Samkomulag um slíkt samstarf var gert við alla aðra meðeigendur bæjarins í desember síðastliðnum. Í bréfi Jóns Gunnars Zoëga segir að álit Mosfellsbæjar í málinu breyti ekki staðreyndum. „Hins vegar er honum frjálst að horfa fram hjá því að allir eigendur Laxness 1, að undanskildum Mosfellsbæ, eru aðilar að þessari beiðni um frágang vatnsmálsins," segir í bréfi lögmannsins. En nákvæmlega þetta atriði líta bæjaryfirvöld allt öðrum augum: „Rétt er að taka fram að bæjarráð hefur fengið það staðfest skriflega frá lögmanni Ragnheiðar Jónasdóttur, Wathne systrum og dánarbúi Soffíu Wathne að þau hafi ekki beðið yður eða nokkurn annan að afla upplýsinga um vatnsnotkunina," svarar bæjarráðið lögmanni Þórarins Jónssonar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira