Lífið

Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock

Daði Einarsson vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity.  Fréttablaðið/Valli
Daði Einarsson vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity. Fréttablaðið/Valli
„Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima," segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore Reykjavík.

Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðalhlutverkum.

Mikil tölvugrafík verður í myndinni og því varð að forvinna hana mjög mikið. Daði þurfti til að mynda að hanna hreyfingar leikara og gera nánast myndina fyrir eiginlegar tökur ásamt því að skipuleggja hvernig ætti að taka upp aðalleikarana þegar eiginlegar tökur hæfust. Hann ber Alfonso Cuarón vel söguna en leikstjórinn á að baki myndir á borð við Harry Potter og fangann frá Azkeban og Children of Men með Clive Owen.

„Hann er rosalegur karakter og mikill kvikmyndagerðarmaður. Það var virkilega skemmtilegt og forvitnilegt að fá að vinna þessa kvikmynd í svona nánu samneyti við innsta hringinn."

Daði segir Cuarón vera mikinn kvikmyndagerðarmann.
Daði flutti heim til Íslands fyrir fjórum árum eftir að hafa búið í London og New York frá því fyrir aldamót. Hann var á mála hjá tölvubrellufyrirtækinu Framestore þegar hann og eiginkona hans tóku þá ákvörðun að snúa aftur til föðurlandsins.

Framestore vildi hins vegar síður en svo sjá á eftir sínum manni og fékk hann til að opna með sér útibú í gamla Landsímahúsinu við Austurvöll. Þar starfa nú fimmtán Íslendingar við gerð tölvubrellna og tæknilega eftirvinnslu og úrvinnslu kvikmynda og auglýsinga. Og þetta er allt lítið mál á stafrænni öld.

„Við erum með mjög öflugar tölvur og öfluga nettengingu við London og New York þaðan sem við fáum stærsta partinn af okkar vinnu."

En það eru ekki bara tæknibrellu-skrýmsli sem rata inn á borð til Daða og Framestore. Því hann er einnig að vinna við kvikmynd Baltasars Kormáks, Contraband.

„Í nútíma kvikmyndum er eiginlega allt lagað, litir og leikkonur. Í Titanic til að mynda voru 800 brelluskot, í Mamma Mia voru þau 2000. Contraband er þokkalega stórt verkefni en það fellur einmitt undir þann hatt að ef áhorfendur taka ekki eftir vinnu okkar þá höfum við staðið okkur í stykkinu."

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.