Fagna áttunda barni Rods Stewart 19. febrúar 2011 14:00 Íslenskir aðdáendaklúbbar Rods Stewart fagna fæðingu áttunda barns söngvarans um þessar mundir. „
Þetta er mikil hátíðarstund. Það er aldrei of mikið af litlum Roddurum í heiminum," segir útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson, formaður Rodway, sem er annar tveggja aðdáendaklúbba söngvarans Rods Stewart á Íslandi. Hinn 66 ára gamli Stewart eignaðist áttunda barnið sitt í vikunni með eiginkonu sinni Penny Lancaster. Drengurinn hefur fengið nafnið Aiden og er annað barn hjónakornanna. „Klúbburinn gleðst og planið er að opna rauðvínsbelju í kvöld. Þeir meðlimir sem eru á landinu ætla að hittast," segir Andri Freyr.Andri Freyr.Og setja plötu á fóninn? „Já, ekki spurning. Þær eru oftast á fóninum. Það er mikið búið að ræða hvaða plötu, en við erum að spá í að hlusta á Unplugged-plötuna í tilefni dagsins. Hann sýnir alltaf sitt besta, en þetta er yndisleg plata. Maður upplifir sig alltaf eins og maður sé í salnum þegar maður hlustar á hana." Birgir Ísleifur Gunnarsson, einn af meðlimum hins aðdáendaklúbbs Rods Stewart á Íslandi, segir það dæmigert fyrir smekkleysi Rodway að opna belju af rauðvíni í tilefni dagsins. „Við Daníel gerum eitthvað miklu betra en það," segir hann og á þá við söngvarann Daníel Ágúst Haraldsson. „Við þurfum að opna skoskt eðalviskí. Ég held að það eigi betur við." Birgir segir fæðingu áttunda barns Stewart mikið gleðiefni fyrir félaga klúbbsins og býst við að setja plötu á fóninn af því tilefni. „Ætli maður hlusti ekki á Every Picture Tells a Story," segir Birgir. „Setji kannski Mandolin Wind á fóninn. Það er magnað lag."- afb
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira