Vonsvikinn Take That aðdáandi: Hágrátandi stelpur úti um allt 18. júlí 2011 20:29 „
Ég vildi bara fá að sjá átrúnaðargoðið mitt hann Robbie en, það þarf greinilega að bíða betri tíma,“ segir Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir sem ætlaði ásamt mágkonu sinni að sjá poppstjörnuna Robbie Williams og félaga hans í Take That á tónleikum í Parken í Kaupmannahöfn á laugardagskvöld. Uppselt var á tónleikana en Ingibjörg og mágkona hennar keyptu miðana í nóvember á síðasta ári. Rétt áður en til stóð að hleypa tónleikargestum inn á leikvanginn komu starfsmenn út og tilkynntu að búið væri að aflýsa tónleikunum. Robbie væri veikur. Síðar var greint frá því að hann hefði fengið matareitrun. Á vef Berlingske Tidende kemur fram að talið sé að söngvarinn hafi orðið veikur eftir að hann borðaði humar á föstudaginn. Talsmaður Take That neitar alfarið að um yfirvarp hafi verið að ræða, en sögusagnir eru um ósætti innan sveitarinnar. Ingibjörg segir að hún og mágkona hennar hafi beðið spenntar eftir tónleikunum alveg síðan í nóvember. „Svo keypti ég flugmiða til Danmerkur og fór til Århus þar sem mágkona mín á heima. Svo á laugardeginum tókum við rútuna til Kaupmannahafnar. Þar þurftum við að taka lest og taxa niður til Parken. Frekar dýr ferð en það átti að vera þess virði á endanum.“ Eftir að greint var fá því að ekkert yrði af tónleikunum ríkti upplausnarástand fyrir utan Parken. „Allt varð brjálað. Stelpur voru hágrátandi útum allt. Enginn vissi hvað þeir áttu að gera.“ Á vef Berlingske Tidende segir að á sjöunda þúsund manns hafi nú skráð sig á síðu á Facebook þar sem þess er krafist að Take That troði upp í Kaupmannahöfn. Fólki vilji ekki fá endurgreitt. Ekki stendur til að verða við þeirri ósk þar sem Take That er á tónleikarferðalagi og dagskráin þétt. Ingibjörg segir aðdáendurna eiga rétt á nýjum tónleikum. Þeir eigi það einfaldlega skilið. Af Robbie er það að frétta að hann hefur beðið aðdáendur Take That afsökunar. Fastlega er búist við því að hann verði kominn á ról fljótlega.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent