Fótbolti

Marta til New York Flash

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Besta knattspyrnukona heims, Marta frá Brasilíu, hefur ákveðið að ganga til liðs við New York Flash í bandarísku atvinnumannadeildinni, WPS.

Marta verður 25 ára gömul í næsta mánuði en hefur undanfarin fimm ár verið valin knattspyrnukona ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA.

Hún lék lengi með Umeå í sænsku úrvalsdeildinni en hefur síðustu tvö tímabil leikið í WPS-deildinni, fyrst með Los Angeles Sol og svo FC Gold Pride.

Hún komst í úrslitaleik deildarinnar með LA Sol og varð svo meistari með FC Gold Pride. Bæði þessi lið hafa þó verið leyst upp en New York Flash hefur tekið við samningi Mörtu við FC Gold Pride.

Marta hefur undanfarin tvö ár spilað með Santos í heimalandinu á meðan að bandaríska deildin hefur verið í fríi. Þar hefur hún spilað með Þórunni Helgu Jónsdóttur, fyrrum leikmanni KR.

Einn íslenskur leikmaður leikur í WPS-deildinni en það er landliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir sem er á mála hjá Philadelphia Independence.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×