Fréttaskýring: Um 20% lands njóta verndar 17. nóvember 2011 19:00 Farið var yfir umhverfismál Evrópusambandsins á ráðstefnu nýverið. Laga þarf íslenskt lagaumhverfi að því evrópska, hvort sem af aðild verður eða ekki. Michael O'Briain situr fyrir miðri mynd. fréttablaðið/valli
Hvernig standa umhverfismál hér á landi gagnvart Evrópulögum? Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að framþróun í lagaumhverfi náttúruverndar hafi verið of hæg hér á landi. Laga þurfi umhverfið að því sem tíðkist í Evrópusambandinu (ESB), óháð því hvort Ísland gerist aðili að því eður ei. Hvítbók um náttúruvernd sé stórt skref fram á við í þeim efnum. Svandís talaði á ráðstefnu um ESB og umhverfismál sem haldin var fyrir skemmstu. Svandís minnti á að á meðal mála sem ætti eftir að ræða í aðildarviðræðum við ESB væru hvalveiðar. Aðalheiður Jóhannesdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, fór yfir muninn á EES-samningnum og lögum ESB varðandi umhverfismál. Þar bar hæst að náttúruvernd væri ekki að finna í EES-samningnum. Hún sagði lagalega séð hafa gengið vel að innleiða umhverfisþætti EES-samningsins, en framkvæmd laganna væri ábótavant. Í máli Michaels O'Briain, eins yfirmanna stjórnarskrifstofu umhverfismála hjá ESB, kom fram að um 18 prósent af landsvæðum aðildarríkja Evrópusambandsins nytu verndar samkvæmt tilskipun varðandi vernd vistgerða. Alls njóta um 26 þúsund svæði í álfunni verndar. Það þýðir ekki að lokað sé á allar framkvæmdir á svæðunum en þær verða hins vegar að falla undir skilgreiningu sjálfbærrar þróunar. Unnið er að innleiðingu tilskipunarinnar um vernd vistgerða og annarrar um vernd fugla. Þær falla undir Natura 2000, sem er stefna Evrópusambandsins í umhverfismálum. Tilskipanirnar verða aðildarríki að hafa innleitt í landslög þegar þau ganga inn í sambandið. Aðildarríki fá ekki undanþágu frá grunnstoðum tilskipananna, en í einhverjum tilfellum hafa undanþágur á öðrum þáttum verið veittar. O'Briain sagði öll lönd sem farið hefðu í gegnum vinnu tengda umhverfismálum ESB hafa bætt stöðu málaflokksins hjá sér og vísaði sérstaklega til reynslu Svía frá 1995. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, fór yfir stöðu frjálsra félagsamtaka gagnvart Evrópusambandinu. Hann sagði þau mikilvægan þrýstihóp sem gæti haft áhrif á stefnumótun bandalagsins. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Erlent Fleiri fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Sjá meira