Innlent

Míla sýnir beint frá Þingvöllum

Frá Þingvöllum.
Frá Þingvöllum.
Enn hefur Míla bætt við vefmyndavélaflóru sína og sett upp myndavél í þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Þingvellir eru einn fjölsóttustu ferðamannastaða landsins og einn af tæplega 800 menningar og náttúruminjastöðum á heimsminjaskrá.

Vefmyndavélin sýnir Þingvallabæinn og Þingvallakirkju og gönguleiðina um svæðið.

Slóðin á vefmyndavélar Mílu er live.mila.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×