Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu 12. júní 2011 13:27 Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegsnefndar og þingmaður Vinstri grænna.
Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í gær eftir nokkur átök í þingsal. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu fyrir skort á heildarsýn, en þingmaður Vinstri grænna segist stoltur af áfanganum. Frumvarpið var samþykkt með 30 atkvæðum gegn 19 í gærkvöldi, en það hefur verið rætt stíft undanfarna daga. Það hafði þá tekið nokkrum breytingum í meðförum þingsins, en alls voru samþykktar 19 breytingartillögur við frumvarpið. Meðal annars var gildistöku laganna frestað, veiðigjald hækkar minna en til stóð og fyrirtæki í uppsjávarfiski greiða minna í svokallaða potta, en það var pottaúthlutunin sem stjórnarandstaðan gagnrýndi einna helst. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegsnefndar og þingmaður Vinstri grænna, var sæl með áfangann: „Ég er bara mjög ánægð og stolt yfir því að þessum áfanga er lokið í að breyta því fiskveiðistjórnunarkerfi sem til stendur með endurskoðun heildarlaganna í haust," segir Lilja. Varaþingmaðurinn Íris Róbertsdóttir úr Sjálfstæðisflokki lét nokkuð að sér kveða við umræður um málið, en hún tók ekki undir þessi orð: „Tilraun þeirra til að koma fram með tvö frumvörp og reyna að koma þeim í gegnum þingið mistókst," segir Íris. „Það er númer eitt. Þetta gekk ekki upp. Það var mikið ósamkomulag í þeirra röðum og frumvarpið var illa unnið. Ég er ekki ánægð með að endurskoðunin sé byrjuð með þessum hætti. Það þarf að gera breytingar, það er ekki ósætti um það innan þingsins eða greinarinnar. En sú leið sem ríkisstjórnin valdi er ekki sú rétta." Íris gagnrýnir frumvörpin tvö fyrir skort á heildarsýn og að of lítill tími hafi verið tekinn til umræðu og undirbúnings á málinu. „Það sannaðist á því að hver einasti umsagnaraðili sagði að málið væri vanbúið," segir hún. „Það ætti að vera nóg fyrir ríkisstjórnina að segja; allt í lagi, við tökum þetta til baka, þetta er sjávarútvegurinn og á þessu lifum við. Við skulum ganga hægt í þessar breytingar sem er samkomulag um að þurfi að gera." Lilja segir frumvarpið hins vegar til bóta og meiri arður renni til ríkisins, þar sem veiðigjaldið hækkar um 40 prósent. „Allt skiptir þetta máli," segir Lilja. „Greinin sem slík þolir alveg þá hækkun. Það hefur komið fram hjá Háskólanum á Akureyri að greinin þolir hækkun veiðigjalds og þetta er langt undir þeim mörkum sem skólinn taldi að greinin myndi þola.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Fleiri fréttir Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Sjá meira