Ísland í ESB: 28% segja aðild af hinu góða - 34% á móti 23. febrúar 2011 12:07
28% Íslendinga eru á því að innganga í Evrópusambandið yrði til góðs. 30% segja að innganga yrði hvorki góð né slæm og 34% segja að aðild yrði slæm fyrir landið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir sendinefnd ESB hér á landi í nóvember síðastliðinn. Viðhorf Íslendinga til aðildar virðast heldur orðin jákvæðari en í sambærilegri könnun sem gerð var í maí 2010 sögðust 19% á því að aðild væri af hinu góða, 32% sögðu hvorki né og þá voru 45% á því að aðild væri slæm fyrir Ísland. Í könnuninni kemur fram að fólk á aldrinum 40-54 ára sé jákvæðast gagnvart ESB aðild en í þeim hópi telja 35% aðild af hinu góða á móti 22-28% í öðrum hópum. Fólk á landsbyggðinni er neikvæðara í garð aðildar og fólk sem skilgreinir sig á vinstri væng stjórnmálanna er almennt jákvæðara til aðildar en hægri menn. Í könnuninni var einnig spurt hvort Evrópusambandsaðild yrði Íslandi til hagsbóta og svöruðu 38% því játandi og 48% sögðu að aðild yrði ekki til hagsbóta. 14% voru óráðin. Í maí árið 2010 töldu 29% aðild til hagsbóta, 58% voru því ósammála og 13% voru óákveðin. Þegar litið er á hópinn sem þátt tók í könnuninni kemur fram að þeir sem hafa lengri skólagöngu að baki eða eru enn í skóla virðast telja að ESB aðild Íslands sé þjóðinni til hagsbóta á meðan þeir sem hafa lokið styttri skólagöngu eru meira efins.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira