Dæmdur fyrir að taka í lurginn á unglingi 23. febrúar 2011 17:25 Egilsstaðir. Mynd úr safni.
Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur fyrir að sparka í unglingspilt og hóta honum með hafnaboltakylfu á Egilsstöðum í maí á síðasta ári. Drengurinn, sem er fjórtán ára gamall, var ásamt vini sínum á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum þegar atvikið átti sér stað. Forsaga málsins er sú að unglingarnir rifu fótbolta af syni hins dæmda, sem var níu ára gamall, og neituðu að skila honum. Samkvæmt dómsorði spörkuðu unglingarnir í drenginn sem varð til þess að hann hringdi í föður sinn. Hann sagði fyrir dómi að hann hefði tekið með sér hafnaboltakylfuna vegna þess að hann vissi ekki út í hvað hann væri að fara. Dómurinn skilur þá afstöðu. Hann kom svo á vettvang og sveiflaði kylfunni en notaði hana aldrei. Aftur á móti sparkaði hann í piltinn þannig hann fékk lófastórt mar á fótlegginn. Eftir heldur ógnandi hegðun föðurins flýðu piltarnir. Dómara þótti árásin ofsafengin og að faðirinn ætti sér engar málsbætur. Var hann því dæmdur fyrir árásina og hótanir að auki. Dómur föðurins er þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. Þá er honum einnig gert að greiða piltinum 400 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Sjá meira