Segir stórt álver á Bakka mjög ólíklegt 3. janúar 2011 18:57
Forstjóri Landsvirkjunar segir mjög ólíklegt að stórt álver rísi við Húsavík, eins og Alcoa vill. Viljayfirlýsing um metanólverksmiðju í Kröflu hafi þó ekki sett aðra iðnaðarkosti aftar í röðina og lítið álver á Bakka sé ekki útilokað. Viljayfirlýsing Landsvirkjunar við Carbon Recycling um metanólverksmiðju í Mývatnssveit kom flatt upp á ráðamenn á Húsavík, sem spyrja sig nú hvort sex ára undirbúningur álvers á Bakka hafi verið til einskis. Byggðarráð Norðurþings harmar í bókun að Landsvirkjun hafi ekki upplýst um gang mála og spyr hvaða áhrif þessi áform hafi á önnur verkefni. Forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, segir hins vegar að viljayfirlýsingin sé aðeins til að kanna hvort Kröflusvæðið henti fyrir metanólverksmiðju. Hún sé ekki skuldbinding og aðrir aðilar séu ekki aftar í röðinni. Landsvirkjun sé að ræða við 4-5 aðila og þeir séu allir mjög áhugaverðir. Engu að síður segir Hörður að Landsvirkjun hafi áhuga á að fjölga í þeim hópi og fá allt að tíu aðila sem hafi áhuga á svæðinu. Það sé markmiðið fyrir þetta ár. Það virðist hins vegar nokkuð ljóst, að mati Harðar, að vegna takmarkaðrar orku kemur stórt álver tæpast til greina á Bakka. "Hins vegar er ljóst að 360 þúsund tonna álver, eins og Alcoa fékk umhverfismat fyrir, það er mjög ólíklegt að það rísi á staðnum," segir Hörður. Hann vill þó ekki útiloka minna álver, þótt við blasi að álfyrirtæki vilji hafa þau sem stærst. Landsvirkjun sé að ræða við aðila sem vilji minni álver. Það sé hins vegar algjörlega óvíst hver verði niðurstaðan af því, enda fylgi mikil stærðarhagkvæmni álverum. Húsvíkingar þurfa þó ekki að örvænta um að ekkert rísi á Bakka, það geri nálægð við höfn og þéttbýlið á Húsavík. "Bakki hlýtur að verða miðpunktur uppbyggingarinnar á þessu svæði," segir Hörður.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira