Með öllu óboðlegt að aldraðir fari í bað einu sinni í viku 15. febrúar 2011 14:39
ViVe - samtök um virkari velferð segja með öllu óboðlegt að aldraðir á stofnununum séu baðaðir einu sinni í viku eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag. Samtökin lýsa sig reiðubúin að hefja starf með hagsmunaaðilum, stjórnvöldum og öðrum að undirbúningi þess að koma á fót notendastýrðri persónulegri þjónustu við aldraða sem koma megi að miklu leyti í stað þeirrar stofnanavistar sem öldruðum stendur til boða nú. Samtökin segja nóg komið af mannréttindabrotum á öldruðu fólki. „Þetta er með öllu óboðlegt og lýsandi fyrir þær ógöngur sem búsetustofnanakerfið á Íslandi hefur ratað í," segir í tilkynningu frá samtökunum. „Mannréttindi eru daglega brotin á öldruðum sem eru sviptir sjálfræði og jafnvel fjárræði og þeim komið fyrir á stofnunum sem þeir sjálfir vilja ekki búa á. Þetta er gert vegna skorts á persónulegri þjónustu við aldraða á þeirra eigin forsendum. Þessu vill ViVe breyta ekki síðar en um næstu áramót þegar málefni aldraðra flytja yfir til sveitarfélaga." „Málefni fatlaðra fluttust frá ríki til sveitarfélaga um síðustu áramót. Í aðdraganda þeirrar breytingar vann ViVe á þverpólitískan og þverfaglegan hátt, ásamt með notendum þjónustunnar, að því að skipuleggja nýjar áherslur um notendastýrða persónulega aðstoð(NPA) fyrir fatlaða. Þetta verk tókst mjög vel og er nú búið að festa NPA fyrir fatlaða í lög. Þessu hyggjumst við einnig ná fram fyrir aldraða þannig að þetta sveigjanlega þjónustuform sem viðheldur lengur virkni fólks, þátttöku og innihaldsríku lífi verði innleitt fyrir alla á Íslandi sem sökum fötlunar eða öldrunar þurfa notendastýrða þjónustu í því skyni að lifa sjálfstæðu lífi. Þetta fyrirkomulag er ekki bara sjálfsagt mannréttindamál heldur er um að ræða mun hagkvæmari og eftirsóknarverðari kost en hefðbundnar búsetustofnanir. Nú er nóg komið af mannréttindabrotum á öldruðu fólki!"
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Fleiri fréttir Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Sjá meira