Fótbolti

Alfreð kom inn á sem varamaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð í leik með Breiðabliki síðasta sumar.
Alfreð í leik með Breiðabliki síðasta sumar.
Alfreð Finnbogason spilaði síðustu tíu mínúturnar með Lokeren þegar að liðið tapaði fyrir Eupen í belgísku úrvalsdeildinni, 2-0.

Alfreð lék sinn fyrsta leik með Lokeren um síðustu helgi er liðið tapaði fyrir Gent, 2-1. Þá spilaði hann í átta mínútur.

Hann var leikmaður ársins í Pepsi-deildinni síðastliðið tímabil sem og einn af markakóngum deildarinnar. Alfreð var þá lykilmaður í liði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari.

Þá lék Arnar Þór Viðarsson allan leikinn í liði Cercle Brugge sem tapaði, 2-1, fyrir Kortrijk á útivelli.

Cercle Brugge og Lokeren eru bæði með 35 stig í 6.-7. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×