Grunaður um rúm 40 auðgunarbrot 10. júní 2011 08:30 Nefnd fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins kemst að þeirri niðurstöðu að rétt hafi verið af innanríkisráðherra að veita fyrrverandi fangelsisstjóra tímabundið lausn frá störfum. Mynd/Þráinn Farestveit
Sú ákvörðun innanríkisráðherra að veita Geirmundi Vilhjálmssyni lausn frá starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju um stundarsakir, var rétt samkvæmt niðurstöðu nefndar fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Geirmundur, sem taldi ákvörðunina óréttmæta og síðar óupplýsta, sætir rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra auðgunarbrota hans á kostnað fangelsisins. Rannsóknin er á lokastigi, að sögn lögreglu. Að því er fram kemur í gögnum sem nefndin hefur aflað hefur lögreglan að undanförnu rannsakað rúmlega fjörutíu tilvik, þar sem grunur leikur á að fangelsisstjórinn fyrrverandi hafi dregið sér fjármuni eða verðmæti í eigu fangelsisins. Við rannsókn málsins gerði lögregla húsleitir á heimili Geirmundar og í sumarhúsi í eigu föður hans. Við leitina lagði lögregla hald á ýmsa muni sem taldir eru í eigu fangelsisins, þar á meðal ýmis verkfæri, varahluti í bifreiðar og hjólbarða. Þá kemur enn fremur fram, að Fangelsismálastofnun hafði áður en til rannsóknarinnar kom gert skriflega athugasemd við Geirmund vegna mikilla innkaupa fangelsisins frá fyrirtækinu N1. Samkvæmt söluyfirliti frá N1 höfðu seldar vörur frá fyrirtækinu farið úr ríflega 1,4 milljónum vegna ársins 2009 í rúmlega 3,5 milljónir fyrstu tíu mánuði árs 2010. Ríkisendurskoðun gerði athugasemdir við innkaup til fangelsisins að upphæð 1,7 milljónir króna á tíu mánaða tímabili 2010, þar sem hið keypta fannst ekki í fangelsinu, tengdist ekki starfsemi þess eða bókhaldsgögn fundust ekki fyrir. Gögn sem lögð hafa verið fram við rannsókn málsins sýna tíð innkaup fyrir fangelsið úr matvöruversluninni Samkaupum í Grundarfirði eða um 50 til 60 smáinnkaup í hverjum mánuði, þrátt fyrir fyrirmæli um hagkvæm innkaup frá birgjum eða lágvöruverslunum, að því er fram kemur í niðurstöðum nefndarinnar. Stór hluti innkaupanna reyndist munaðarvara, sem ekki væri á boðstólum í fangelsum ríkisins, svo sem kjúklingalundir, regnbogasilungur, sælgæti, gosdrykkir og fleira. Geirmundur og eiginkona hans hefðu að mestu stundað innkaupin. Í sumum tilvikum hefðu fangar kvittað fyrir móttöku á vörum, en fangelsisstjórinn í öllum tilvikum samþykkt reikningana. jss@frettabladid.is
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira