Tilraun sem breytti litlu 8. september 2011 08:00 Steingrímur J. Sigfússon segir ríkið ekkert hafa tapað á því að hafa breytt kröfu á hendur Sögu fjárfestingabanka og VBS fjárfestingarbanka í lán. Fréttablaðið/GVA „
Þetta var tilraun og hefði engu breytt. Það var verið að reyna að tryggja hagsmuni ríkisins og þessar kröfur eins og hægt var,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að ólíklegt þyki að Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ), sem á tæplega fimmtíu milljarða króna kröfu á hendur Sögu fjárfestingarbanka og VBS fjárfestingarbanka fái hana að fullu greidda. Eftir því sem næst verður komist gæti ESÍ í besta falli fengið tíu prósent af kröfunni til baka, um fimm milljarða af um fimmtíu. Krafan er tilkomin eftir svokölluð ástarbréfaviðskipti fyrirtækjanna sem fólst í að þau öfluðu gömlu stóru bönkunum lausafjár úr Seðlabankanum með endurhverfum viðskiptum. Þegar bankarnir fóru í þrot stóðu Saga og VBS uppi með kröfur Seðlabankans. Kröfum þessum var breytt í lán til fyrirtækjanna. Ekki var um nýjar lánveitingar að ræða. VBS fór í þrot ári eftir að kröfunni var breytt í lán og náði fyrirtækið aldrei að greiða fyrstu afborgun þess. Ólíklegt þykir að mikið skili sér af skuldinni til ESÍ. Líklegt þykir hins vegar að eignarhaldsfélag Sögu fjárfestingarbanka sem á að standa straum af afborgunum geti greitt allt að fjórðung af tæplega tuttugu milljarða láni. - jab
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Sjá meira