Selfyssingar varaðir við dæmdum kynferðisbrotamanni Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. febrúar 2011 16:20 Bréfinu var dreift á Selfossi.
Íbúar í hluta Hólahverfis á Selfossi fengu nafnlaust dreifibréf inn um bréfalúguna hjá sér síðdegis í gær þar sem bent er á að dæmdur kynferðisafbrotamaður búi í hverfinu. Eftir því sem fram kemur á fréttavefnum Sunnlenska er yfirskrift bréfsins „Pervert í hverfinu". Þar er birt nafn mannsins, heimilisfang og stór mynd af honum auk vefslóðar á dóm Hæstaréttar. Hæstiréttur dæmdi manninn á dögunum í tólf mánaða fangelsi fyrir að tæla 17 ára gamla stúlku og misnota hana kynferðislega árið 2009. Hann hafði áður verið sakfelldur í héraðsdómi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, hafði ekki heyrt af bréfinu þegar Vísir bar frétt Sunnlenska undir hann. Hann útilokaði hins vegar ekki að með bréfinu væri verið að brjóta ákvæði í almennum hegningarlögum um friðhelgi einkalífsins. Sunnlenska hefur eftir Svani Kristinssyni, lögregluvarðstjóra á Selfossi, að lögreglu hafi borist tilkynning um bréfið og málið sé til skoðunar hjá rannsóknardeild.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira