„Kannski var þetta listvinur að safna minjagripum“ Erla Hlynsdóttir skrifar 10. febrúar 2011 14:37 Stefán Pálsson er ekki hrifinn af því sem verkið stendur fyrir Mynd úr safni / GVA
Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, segist ekki hafa minnstu hugmynd um hver er ábyrgur fyrir nýlegum skemmdarverkum á Natóeldinum svokallaða, listaverki eftir Huldu Hákon. „Kannski var þetta listvinur að safna minjagripum eða beinskeyttur listgagnrýnandi," segir Stefán sem er einlægur andstæðingur þess að Íslands sé aðili að Atlantshafsbandalaginu, eða Nató. Vísir greindi frá því í morgun að einn af logunum á listaverkinu hefur verið fjarlægður. Verkið var afhjúpað í maí 2002 í tilefni af fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn var hér á landi. Hver logi táknaði þá hvert aðildarríki. Skömmu síðar var einn loginn fjarlægður, og nú var öðrum stolið. Þá hefur málningu tvisvar verið skvett á verkið en uppi hafa verið getgátur um að þarna hafi andstæðingar Nató að verki, án þess þó að neinn hafi haft neitt fyrir sér í því.Verk Huldu Hákon við Hagatorg í ReykjavíkMynd Vilhelm„Persónulega finnst mér þetta listaverk óviðeigandi, en ef menn vilja losna við það þá er það ansi hægvirk leið að plokka bara af einn arm á nokkurra ára fresti," segir Stefán. Enn hefur því ekki verið upplýst hvað varð um átjánda logann.
Tengdar fréttir Natóeldurinn kulnar: Óvirðing við listakonuna Logunum í Natóeldinum svokallaða við Hagatorg í Reykjavík fer fækkandi en þeir eru nú aðeins átján, þrátt fyrir að hafa upphaflega verið tuttugu. Listaverkið er eftir Huldu Hákon og heitir 20 logar en verkið var afhjúpað í maí 2002 í tilefni af fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, Nató, sem haldinn var hér á landi. 10. febrúar 2011 08:48 Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira
Natóeldurinn kulnar: Óvirðing við listakonuna Logunum í Natóeldinum svokallaða við Hagatorg í Reykjavík fer fækkandi en þeir eru nú aðeins átján, þrátt fyrir að hafa upphaflega verið tuttugu. Listaverkið er eftir Huldu Hákon og heitir 20 logar en verkið var afhjúpað í maí 2002 í tilefni af fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, Nató, sem haldinn var hér á landi. 10. febrúar 2011 08:48