Það er bannað að njóta listar í dag 1. nóvember 2011 11:07 Búið er að pakka Jóni Sigurðssyni inn. Mynd Sigurjón
Í dag er bannað að njóta lista, en bandalag íslenskra listamanna (BÍL) stendur fyrir listalausa deginum í dag. Þannig hafa listamenn pakkað styttum í miðborg Reykjavíkur inn í plast svo það sé örugglega ekki hægt að njóta listarinnar. Markmið listalausa dagsins er að vekja athygli fólks á þýðingu lista og menningar í daglega lífinu. Það kann því að reynast þrautinni þyngri að fara eftir boðorðunum fimmtán, sem gefin hafa verið út í tilefni dagsins, en það verður gaman að leggja sig fram um að reyna. Hér fyrir neðan má lesa boðorðin þar sem fólki er meðal annars bannað að hlusta á tónlist, spila tölvuleiki með grafískri mynd og horfa á bíómyndir. Boðorðin eru: 1. Ekki fara á listasöfn, hönnunarsöfn, gallerí eða minjasöfn sem geyma listaverk. 2. Ekki horfa á myndlistarverk, þar með talin málverk, ljósmyndir, höggmyndir og innsetningar, hvort sem er úti sem inni. 3. Ekki fara á tónleika. 4. Ekki hlusta á tónlist, hvorki af CD, vínil, snældu, stafrænum tónlistarspilurum né snjallsímum (hringitónar meðtaldir). 5. Ekki spila tölvuleik með grafískri mynd. 6. Ekki fara á danssýningu. 7. Ekki lesa skáldsögu, ljóð eða nokkurn annan texta sem talist gæti til fagurbókmennta. 8. Ekki fara í leikhús. 9. Ekki horfa á kvikmynd, hvorki í bíó, af tölvu, í sjónvarpi né hverskonar skjá 10. Ef einhvers konar listaverk birtist í sjónvarpi, t.d. í fréttum eða auglýsingum, ber að loka augunum eða líta undan. 11. Ef tónverk heyrist í sjónvarpi eða útvarpi ber að lækka niður í tækinu. 12. Ekki horfa á byggingar sem eru hannaðar af arkitekt. 13. Ekki horfa á eða ganga um garða sem eru hannaðir af landslagsarkitekt. 14. Ekki horfa á eða ganga í sérhönnuðum fötum eftir fatahönnuð. 15. Ekki gera neitt eða njóta neins sem hægt væri að túlka sem list eða hefur í sér listrænt gildi, þar með talin verk dansara, hönnuða, kvikmyndagerðarmanna, leikara, myndlistar-manna, rithöfunda og tónlistarmanna.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira