Breyta nýlegu hringtorgi fyrir milljónir 1. nóvember 2011 04:00 Hringtorgið við olís í norðlingaholti Hægara verður um vik fyrir þessa rútu og aðra stóra bíla að fara um hringtorgið eftir að framkvæmdum lýkur á næstu vikum. fréttablaðið/stefán
Vegagerðin vinnur nú að því að víkka hringtorg á Suðurlandsvegi í Norðlingaholti. Þó að hringtorgið sé nýlegt hafa flutningabílstjórar kvartað mikið undan því vegna þess hversu þröngt það þykir. Breytingarnar við hringtorgið kosta um tíu milljónir króna, að sögn Vegagerðarinnar. „Þeir hafa kvartað sérstaklega mikið undan þessu hringtorgi miðað við önnur. Þeir hafa átt í erfiðleikum með að fara í gegnum það án þess að rekast upp á kanta svo það var ákveðið að verða við þeirra óskum um að gera torgið aðeins rýmra,“ segir Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri suðvestursvæðis hjá Vegagerðinni. Hann segir að verið sé að minnka miðeyjuna á torginu svo rýmra verði fyrir flutningabíla. „En hættan er auðvitað sú að fólksbílar geti þá líka farið aðeins hraðar í gegn, það er samspil þar á milli.“ Jónas segir að um þrjú ár séu síðan torgið var lagt. „Torgið uppfyllti okkar kröfur en menn voru ekki ánægðir með það. Það þótti heldur þröngt. Flest hinna hringtorganna eru tvöföld svo það er auðveldara að fara í gegnum þau,“ segir Jónas, en torgið sem verið er að breyta er ein akrein. - þeb
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira