Kærður fyrir að nauðga pilti - málið fellt niður 1. nóvember 2011 12:30 Hin meinta nauðgun átti að hafa átt sér stað í heimahúsi í Hafnarfirði.
Mál gegn rúmlega þrítugum karlmanni, sem kærður var fyrir nauðgun af tvítugum pilti í heimahúsi í Hafnarfirði, hefur verið fellt niður. Eftir rannsókn lögreglu og Ríkissaksóknara var ekki talið líklegt að ákæra myndi leiða til sakfellingar. Málið hefur verið til skoðunar í kerfinu í nokkuð langan tíma en það var Fréttablaðið sem sagði fyrst frá kærunni í maí á síðasta ári. Þar kom fram að maðurinn hefði boðið piltinum, sem er um tvítugt, í samkvæmi heim til sín í Hafnarfirði. Þegar þangað var komið var enginn nema húsráðandi á staðnum. Áfengi var haft um hönd og sofnaði pilturinn í kjölfarið. Hann vaknaði síðan við að maðurinn var að misnota hann. Pilturinn fór nokkru síðar á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis á Landspítalanum og kærði nauðgunina. Þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem maðurinn er sakaður um nauðgun, því fréttastofa birti viðtal við annan pilt sem hafði svipaða sögu að segja þegar málið kom upp á síðasta ári. Rannsókn lögreglu á málinu lauk í upphafi þessa árs en maðurinn hafði flutt búferlum erlendis í kjölfar kærunnar. Því var erfitt að ná á hann vegna málsins. Að lokum var það síðan sent til embætti Ríkissaksóknara sem fór yfir gögn í málinu. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkissaksóknara var málið síðan látið niður falla, þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira