Innlent

Víkingur Heiðar Ólafsson spilar Ave Maria

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari kom á nýsköpunarþingið á Grand Hóteli í morgun og lék þrjú lög fyrir gesti. Meðal laga sem Víkingur Heiðar lék var Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns. Myndatökumaður Stöðvar 2 var á staðnum og náði myndum af Víkingi Heiðari leika við hvurn sinn fingur.

Víkingur Heiðar sagðist ávallt fá gríðarlega sterk viðbrögð frá áhorfendum þegar hann léki Ave Maria, einkum þegar gestirnir væru erlendir. Lagið væri algjör perla sem gerði fólk agndofa af hrifningu.

Eftir að Víkingur hafði lokið sér af stóðu gestir upp og klöppuðu honum lof í lófa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×