Björgólfur bar silfurúr - ekki gull Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2011 19:12 Björgólfur Thor og Sigurjón Árnason yfirgefa ráðherrabústaðinn. Mynd/ Valli.
Björgólfur Thor Björgólfsson, einn af aðaleigendum Landsbankans fyrir hrun, gerir alvarlegar athugasemdir við frásagnir í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis af atburðum daginn áður en Neyðarlögin voru sett. Björgólfur var einn fjölmargra bankamanna sem mættu í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu. Þar ræddu þeir við forystumenn ríkisstjórnarinnar. Rannsóknarnefnd Alþingis ræddi við Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra um atburðina. Þá var rætt við Jón Steinsson hagfræðing, sem var ráðgjafi Geirs Haarde forsætisráðherra um atburði í Ráðherrabústaðnum þann dag. Meðal annars ræddu ráðherrarnir um fund sinn við Björgólf. Björgólfur gerir athugasemdir við það að hafa ekki fengið að segja frá sinni hlið málsins. Frægar eru lýsingar Össurar af fundinum sem ráðherrar, þar á meðal hann, áttu með Björgólfi Thor, Halldóri J. Kristjánssyni og Sigurjóni Þ. Árnasyni, en þeir tveir síðarnefndu voru bankastjórar Landsbankans fyrir hrun:Björgólfur kemur að bíl sínum eftir fundinn örlagaríka. Mynd/ Valli.„Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út," er haft eftir Össuri í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Björgólfur Thor segir að þessi hluti frásagnarinnar sé ekki einu sinni réttur. Hann hafi verið með silfurúr þessa helgi en ekki gullúr. „Ljóst er að þó svo ráðherra hafi bersýnilega verið með hugann við aukatriðin þetta kvöld þá tókst honum ekki einu sinni að greina þau rétt," segir Björgólfur Thor á vef sínum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira